Mourinho algjörlega á móti vináttuleikjum: „Við erum í vandræðum“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. mars 2017 08:30 José Mourinho er ekki aðdáandi landsleikjaviku. vísir/getty
José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, segist vera algjörlega á móti vináttulandsleikjum eftir að hann missti báða ensku landsliðsmiðverðina sína; Chris Smalling og Phil Jones, í meiðsli á síðustu dögum. Jones neyddist til að yfirgefa herbúðir enska landsliðsins í síðustu viku vegna meiðsla á tá sem hann hlaut eftir tæklingu liðsfélaga síns hjá United, Chris Smalling. Smalling sjálfur dró sig svo sjálfur úr hópnum vegna meiðsla á fæti eftir vináttuleikinn á móti Þýskalandi. „Ég er algjörlega á móti vináttulandsleikjum. Mér finnst bara eðlilegt að spila vináttulandsleiki í lokaundirbúningi fyrir stórmót,“ segir Mourino í Soccer Saturday á Sky Sports. „Það er eðlilegt að spila vináttuleiki nokkrum vikum fyrir Evrópumót eða heimsmeistaramót en að spila vináttuleiki í bland við leiki í undankeppni stórmóta er óskiljanlegt. Þessir leikir eru ekki einu sinni stórir þannig ég er enginn aðdáandi.“ Þrettán leikmenn Manchester United spiluðu landsleiki á síðustu dögum en Antonio Valencia, Marcos Rojo og Sergio Romero þurftu að fljúga hina löngu leið til Suður-Ameríku. Undirbúningur Manchester United og WBA, sem lærisveinar Mourinho mæta um helgina, er því ólíkur. „Ég skil ekki einu sinni hvernig báðir miðverðirnir okkar meiddust fyrir leik enska liðsins. Leikurinn var á sunnudegi en þeir meiddust á æfingu. Við misstum fjóra í meiðsli en svo held ég að Pogba sé líka meiddur þannig það eru fimm. Við erum í vandræðum,“ segir José Mourinho.
Enski boltinn Mest lesið Guðjohnsen snýr aftur á Brúna: „Sérstakt fyrir mig og pabba“ Fótbolti Maradona verður grafinn upp Fótbolti „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Handbolti Finnur til með Ten Hag og býður honum í glas Fótbolti Frumsýna nýja Evróputreyju Fótbolti Gaz-leikur Pavels: Stanslaust djamm gegn bingókvöldi Körfubolti Annað Schumacher-brúðkaup gæti verið í vændum Formúla 1 Henry hélt að Saka yrði ekki það góður Enski boltinn Salah setti met í sigri Liverpool Fótbolti Hætti við að hætta og samdi við Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Sjá meira