Menning

Tinni, komdu upp í Mosó

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ísak Óli með eina Tinnamynd sem hann málaði í febrúar.
Ísak Óli með eina Tinnamynd sem hann málaði í febrúar. Vísir/Stefán
Tinni og hundurinn hans Tobbi, prófessor Vandráður, Kolbeinn kapteinn, leynilögreglumennirnir Skapti og Skafti og fleiri söguhetjur Tinnabókanna raða sér nú á veggi Listasalar Mosfellsbæjar að Þverholti 2. Þar er myndlistarmaðurinn Ísak Óli Sævars­son að verki.

Einkasýning sem hann opnar klukkan 14 í dag ber yfirskriftina Tinni í túninu heima.

Fáir munu fróðari um Tinna og persónur í bókunum um hann en Ísak Óli. Hann lifir sig inn í sögurnar. Það upplifir blaðamaður þegar hann heimsækir Ísak Óla í vinnustofuna.



Hann situr þar undir súð umkringdur listaverkum og býr til samtöl milli persóna á myndunum af mikilli list. Þar eru ekki bara Tinnamyndir heldur líka myndir af Gutta sem er alltaf óþekkur, Strumpunum, Múmínálfunum og fleiri þekktum fígúrum úr bókum. Því Ísak Óli er afkastamikill myndlistarmaður.

Ein af glænýju myndunum á sýningunni.


Ísak Óli er 28 ára gamall og hefur haldið fjölda sýninga gegnum árin. Hann útskrifaðist af starfsbraut fyrir fatlaða frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ árið 2009. Síðan hefur hann sótt fjölda námskeiða í Myndlistaskólanum í Reykjavík og í vor mun hann verða í hópi fyrstu nemenda sem útskrifast af diplómabraut Myndlistaskólans í Reykjavík fyrir fólk með þroskahömlun.



Sýningin Tinni í túninu heima er liður í listahátíðinni List án landamæra sem er með áherslu á fjölbreytileika mannlífsins. Hún verður opin til 13. maí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.