Fótbolti

Fyrsta tap Bayern síðan í nóvember

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kramaric fagnar markinu sögulega í kvöld.
Kramaric fagnar markinu sögulega í kvöld. vísir/getty
Hoffenheim vann í kvöld sinn fyrsta sigur gegn Bayern frá upphafi í kvöld en liðið vann þá leik liðanna, 1-0. Andrej Kramaric með eina mark leiksins.

Þetta var fyrsta tap Bayern síðan í nóvember og aðeins annar tapleikur liðsins í deildinni.

Aðeins Hoffenheim og Dortmund hafa náð að halda hreinu gegn Bayern í vetur og lögðu risann 1-0.

Dortmund vann Hamburg, 3-0, og hefur því ekki tapað heimaleik í deildinni í heil tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×