Eigingjarn Savage vildi að Gamst myndi klúðra dauðafæri svo hann missti ekki af úrslitaleik Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. apríl 2017 14:15 Glæsilegar strípur hjá Morten Gamst og Robbie Savage á árum áður. vísir/getty
Robbie Savage, fyrrverandi leikmaður Blackburn í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, vildi ekki að liðið kæmist í úrslitaleik enska bikarsins árið 2007 því hann var meiddur. Hann viðurkenndi þetta í hlaðvarpsþættinum Flintoff, Savage and the Ping Pong Guy, sem hann stýrir ásamt krikketgoðinu Freddie Flintoff hjá breska ríkisútvarpinu. Savage fékk fyrirliðabandið hjá Blackburn 2006/2007 sem var spennandi tímabil hjá liðinu. Það var í Evrópukeppni og gekk vel í deild og bikar. Savage var búinn að skora tvö mörk í Evrópu áður en hann fótbrotnaði í öðrum leik sem fyrirliði og missti til dæmis af leikjum á móti Bayer Leverkusen í 16 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Án Savage komst Blackburn alla leið í undanúrslit ensku bikarkeppninnar en þar mætti liðið Chelsea á Old Trafford. Með sigri hefðu lærisveinar Mark Hughes komist í úrslitaleikinn á Wembley. „Ég veit að þetta hljómar ekki vel en ég sat þarna og hugsaði að ef við vinnum leikinn þarf ég að horfa á strákana fara í gegnum allan undirbúninginn fyrir úrslitaleikinn og prófa nýju jakkafötin á meðan ég væri bara gleymdur,“ segir Savage. Blackburn fékk dauðafæri til að komast alla leið en norski vængmaðurinn Morten Gamst Pedersen fékk boltann galopinn fyrir marki Chelsea þegar ein mínúta var eftir af framlengingunni í stöðunni 1-1. Sá norski brenndi af og Chelsea vann leikinn, 2-1. „Ég man að ég hugsaði: „Gerðu það fyrir mig, ekki skora.“ Ég man að ég var svo ánægður þegar hann klúðraði en svo töpuðum við leiknum, Frank Lampard skaut Chelsea áfram. Þegar ég hitti strákana eftir leik leið mér eins og asna því formaðurinn, stjórinn Mark Hughes og strákarnir voru niðurbrotnir,“ segir Robbie Savage. Hljóðbrotið má heyra hér að neðan.
Enski boltinn Mest lesið Maradona verður grafinn upp Fótbolti Finnur til með Ten Hag og býður honum í glas Fótbolti Hætti við að hætta og samdi við Barcelona Fótbolti Salah setti met í sigri Liverpool Fótbolti Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum Körfubolti Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Dagskráin í dag: Víkingar í Sambandsdeildinni og Bónus deild karla hefst Sport „Þetta var ekki fallegt en við tökum tvö stigin“ Körfubolti Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Handbolti Henry hélt að Saka yrði ekki það góður Enski boltinn Fleiri fréttir Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Sjá meira