„Þetta tók sinn tíma, yfir 80 keppnir. Ég er þakklátur liðinu fyrir tækifærið. Ég hef þurft að læra mikið og bíða lengi en þetta er þess virði. Ég er afar ánægður í augnablikinu. Ræsingin var góð, kannski örlítið betri en hjá Ferrari. Mitt eina markmið á ferlinum er að verða heimsmeistari,“ sagði Bottas á verðlaunapallinum.
Mercedes leiðir heimsmeistarakeppni bílasmiða með einu stigi. Bottas tryggði áframhaldandi sigurgöngu Mercedes í Rússlandi. Mercedes er eina liðið sem hefur unnið rússneskan kappakstur.
„Ég reyndi allt sem ég gat til að ná Valtteri. Ég var viss um að Felipe Massa myndi hleypa mér fram úr í þriðju beygju en það gerðist ekki. Valtteri er maður dagsins. Við reyndum að teygja á þessu eins og við gátum en áætlunin gekk ekki. Við vorum báðir með góða ræsingu en Valtteri var þegar kominn á undan þegar við þurftum að bremsa í fyrsta skipti,“ sagði Sebastian Vettel sem er með 13 stiga forystu á Lewis Hamilton í heimsmeistarakeppni ökumanna.
„Því miður náðum við ekki að enda í betra sæti en þriðja í dag. Ég held að ég hafi átt erfiða byrjun á tímabilinu en liðið er í góðum málum, en við enduðum samt bara í þriðja sæti. Við munum halda áfram að reyna og reyna og við munum vinna á endanum. Smáatriðin eru aðalatriðin núna,“ sagði Kimi Raikkonen á verðlaunapallinum.
„Ég var með sjötta sætið í vasanum þangað til það fór að leka úr dekkinu hjá mér. Ég var óheppinn í dag en annars er ég ánægður með keppnina og glaður fyrir hönd Valtteri. Hann er einn sá besti, hann hefur ekki alltaf fengið sanngjarna umfjöllun. Hann mun afreka stærri hluti en einn sigur. Sebastian virtist ekki vilja taka fram úr, hann hefur greinilega gaman af því að kvarta,“ sagði Felipe Massa sem varð níundi á Williams bílnum.

„Ég skil hver vandinn var í dag. Ég veit hvar mig vantaði hraða en ég mun bæta mig fyrir næstu keppnu. Það er frábært að liðið hafi unnið og ég hefði viljað vera þarna til að bakka hann upp,“ sagði Lewis Hamilton sem varð fjórði í dag, í einskismannslandi á Mercedes bílnum.
„Ég er ekki vonsvikinn, ég þarf bara að komast á salernið. Við töpuðum augljóslega á ræsingunni en eftir það voru bílarnir okkar í góðu formi,“ sagði Maurizio Arrivabene, liðsstjóri Ferrari sem var mikið mál eftir keppnina.