Fótbolti

Hallgrímur lék í sigri á sínu gamla félagi

Hallgrímur Jónasson
Hallgrímur Jónasson mynd/lyngby
Hallgrímur Jónasson var á sínum stað í byrjunar liði Lyngby sem lagði SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Lokatölur urðu 2-0 og Lyngby komst í 3. sætið.

Hallgrímur hóf feril sinn í Danmörku með SönderjyskE, áður en hann hélt til OB í Óðinsvé og síðan til Lyngby.

Síðar í dag fara Hjörtur Hermannsson og félagar hans í Bröndby í heimsókn til Midtjylland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×