Obama ræddi við Merkel á opnum fundi í Berlín Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. maí 2017 10:23 Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sátu fyrir svörum við Brandenborgarhliðið í Berlín í dag. Vísir/AFP
Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er nú staddur í Berlín, höfuðborg Þýskalands, en hann flutti í fyrsta sinn ræðu á evrópskri grundu síðan hann lét af embætti forseta. Hann hitti kanslara Þýskalands, Angelu Merkel, á opnum fundi við Brandenborgarhliðið í Berlín í dag. Obama og Merkel ræddu lýðræði og alþjóðlega ábyrgð á 500 ára afmæli siðaskiptanna í Þýskalandi. Búist var við um 100 þúsund áhorfendum við Brandenborgarhliðið í dag. Obama og Merkel tóku við spurningum um lýðræði frá kennara, leikara, félagsráðgjafa og nema. 200 þúsund Berlínarbúar komu saman til að hlýða á Barack Obama í Berlín árið 2008, sem þá var í framboði til forseta Bandaríkjanna. Í þeirri heimsókn meinaði Angela Merkel honum að halda ræðu við Brandenborgarhliðið. Árið 2016 hélt hann í síðustu embættisferð sína til Evrópu, einmitt til Berlínar. Merkel mun ganga á fund núverandi forseta Bandaríkjanna, Donalds Trump, síðar í dag er ríki Atlantshafsbandalagsins hittast í höfuðstöðvum sínum í Brussel.Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, fékk öllu blíðari viðtökur í Berlín en eftirmaður hans, Donald Trump, fékk í Brussel í gær.Vísir/AFP
Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Sjá meira