Innlent

Fjölskyldugarðurinn alveg að grotna niður

Benedikt Bóas skrifar
Litli leikkastalinn er orðinn mjög sjúskaður en það er ekki hægt að mála hann enda plasthúðaður.
Litli leikkastalinn er orðinn mjög sjúskaður en það er ekki hægt að mála hann enda plasthúðaður. vísir/anton brink
„Ef Reykjavíkurborg ætlar að hafa þessa starfsemi þá er það skylda hennar að sjá til þess að rekstrinum og viðhaldi sé sinnt. Það eru mörg sóknarfæri í þessari skemmtilegu starfsemi,“ segir Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins en mörg tæki þarfnast endurnýjunar, viðhalds og margt er hreinlega orðið ónýtt.

Nokkur tæki verða ekki í notkun í sumar vegna niðurskurðar á atvinnu fyrir unglinga. Fyrir utan leiktækin eru girðingar löngu úr sér gengnar. Alvarlegast sé þó aðstöðuleysi, fyrir kennslu og starfsfólk sem uppfyllir ekki lágmarkskröfur.

Kostnaður við endurnýjun og viðgerðir er áætlaður 32,4 til 37,4 milljónir króna, fyrir utan kostnað vegna girðinga og starfsmannaaðstöðu. Þetta kemur fram í svörum sviðsstjóra ÍTR við fyrirspurn fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina.

Vísir/Anton Brink
Listinn yfir tæki sem þarf að laga er langur. Krakkafoss, báturinn frægi sem snýst, er viðhaldsfrekur og þarfnast endurnýjunar enda á fermingaraldri. Lestin er 16 ára og í henni þarf að endurnýja rafgeyma. Komið er að því að endurnýja hluta af ökuskólabílunum, öll ljósin í hinni 15 ára hringekju eru ónýt, fallturninn er áratugagamall, brunabíllinn er ónýtur, litli leikkastalinn sjúskaður og Naglfar, stóra leikkastalaskipið, þarf að mála og dytta að. 

Þá er æskilegt að setja viðunandi undirlag eins og er við skóla við skipið. Fjölga þarf rafmagnsbílum fyrir yngri börn og bæta akstursaðstöðu. 

Tómas segir að hann vonist eftir auknu fjármagni. „Eftir langvarandi hlé verða vonandi stigin fyrstu skrefin til að bæta garðinn. Það hefur staðið til að gefa í frá því fyrir hrun. Þetta er mikið til uppsafnað. Nú þurfa allir góðir menn að taka höndum saman og gefa í.“

Vísir/Anton Brink
Vísir/Anton Brink



Fleiri fréttir

Sjá meira


×