Sport

Aníta sló sitt annað Íslandsmet á síðustu fimm dögum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aníta er greinilega í góðu formi þessa dagana.
Aníta er greinilega í góðu formi þessa dagana. vísir/getty
Aníta Hinriksdóttir setti nýtt Íslandsmet í 800 metra hlaupi kvenna á Demantamóti í Osló í kvöld.

Aníta kom í mark á 2:00,05 mínútum og bætti Íslandsmetið sem hún setti á Ólympíuleikunum í Ríó í fyrra um níu hundraðshluta úr sekúndu.

Þetta er annað Íslandsmetið sem Aníta setur á fimm dögum en á sunnudaginn setti hún Íslandsmet í 1500 metra hlaupi á móti í Hollandi.

Aníta varð sjötta í hlaupinu í kvöld. Caster Semenya frá Suður-Afríku varð hlutskörpust á 1:57,59 mínútunum.

Aníta er greinilega í frábæru formi þessa dagana sem veit á gott fyrir framhaldið. Hún keppir á öðru Demantamóti í Stokkhólmi á sunnudaginn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×