Sport

Aníta fékk boð á annað Demantamót

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aníta Hinriksdóttir tekur tvö Demantamót.
Aníta Hinriksdóttir tekur tvö Demantamót. Vísir/EPA
Hlaupadrottningin Aníta Hinriksdóttir fékk boð um að hlaupa 800 metrana á Demantamóti í Stokkhólmi 18. júní en þetta kemur fram á RÚV.

Aníta var búin að bóka sig í 800 metra hlaupið í á Demantamótinu Ósló 15. júní þannig hún dvelur næstu daga á Norðurlöndum og tekur þátt í þessari sterkustu frjálsíþróttamótaröð heims.

Hlaupið í Stokkhólmi hjá Anítu verður síðasta grein mótsins þannig sviðsljósið verður á þeirri íslensku og stöllum hennar á því móti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×