Tímatakan í Kanada er ekki sú mikilvægasta, brautin er þannig að langir beinir kaflar skila tækifærum til að taka fram úr þegar hemla á fyrir næstu beygju.
Fyrsta lotan
Pascal Wehrlein á Sauber lenti aftur á bak á varnarvegg á leiðinni inn í fyrstu beygju undir lok lotunnar. Gulum flöggum var veifað og allir þurftu að hægja á sér þar í gegn.
Þeir sem féllu út í fyrstu umferð voru; Sauber ökumennirnir, Kevin Magnussen á Haas, Lance Stroll á Williams og Stoffel Vandoorne á McLaren.
Önnur lotan
Daniil Kvyat smellti Toro Rosso bílnum sínum utan í vegg og sprengdi dekk við það dekk og hann tapaði þar með tækifærinu til að reyna að komast í þriðju lotuna.
Þeir sem féllu út í annarri umferð voru; Toro Rosso ökumennirnir, Fernando Alonso á McLaren, Romain Grosjean á Haas og Jolyon Palmer á Renault.

Hamilton smellti í hraðasta hring sem farinn hefur verið á brautinni í Kanada í sinni fyrstu tilraun í þriðju lotu. Valtteri Bottas var annar eftir fyrstu tilraunina og Ferrari menn komu svo þar á eftir.
Það var ljóst að einhver þyrfti að reima á sig fara ofurhratt skóna til að bæta tíma Hamilton. Vettel gerði heiðarlega tilraun til að slá Hamilton af toppnum. Hann varð þó 0,004 sekúndum hægari en Hamilton. Vettel gat ekki náð Hamilton sem bætti sig enn frekar með stórkostlegum hring.
Bein útsending frá keppninni hefst 17:30 á Stöð 2 Sport 2 á morgun.
Öll helstu úrslit helgarinnar má sjá á gagnvirku brautarkorti hér að neðan.