Sport

Úrslit dagsins frá Meistaramóti Íslands

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Guðni Valur Guðnason varð Íslandsmeistari í dag.
Guðni Valur Guðnason varð Íslandsmeistari í dag. Vísir/AFP
Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum lauk á Selfossi í dag. Lið ÍR vann stigakeppnina með 38537 stig. FH varð í öðru sæti með 34232 stig. ÍR-ingar unnu einnig stigakeppni kvenna með 22615 stig og urðu FH konur í öðru sæti með 15077 stig. Í stigakeppni karla skiptust liðin á sætum, FH-ingar unnu með 19155 stig og ÍR varð í öðru sæti með 15958 stig.

Sara Hlín Jónsdóttir úr Breiðabliki hlaut Íslandsmeistaratitilinn í 400 metra grindahlaupi í dag, en hún hljóp án samkeppni. Arna Stefanía Guðmundsdóttir, sem keppir í greininni á Evrópumóti U23 um næstu helgi, var skráð til leiks en mætti ekki til keppni.

ÍR-ingurinn Ívar Kristinn Jasonarson vann 400 metra grindahlaup karla á 53,30 sekúndum.

Fremsta hlaupakona landsins, Aníta Hinriksdóttir, var ekki meðal keppenda á mótinu á Selfossi. Iðunn Björg Arnaldsdóttir úr ÍR nýtti sér fjarveru hennar og hreppti gullverðlaun í 800 metra hlaupi á tímanum 2:20,97 mínútum.

Hildigunnur Þórarinsdóttir, ÍR, sigraði í þrístökki kvenna með því að stökkva 11,62 metra. Hildigunnur jafnar þar besta árangur sinn.

Ingi Rúnar Kristinsson, Breiðabliki, stökk hæst allra í stangarstökki karla í dag. Hann fór yfir 4,42 metra.

Ásdís Hjálmsdóttir.vísir/anton
Ásdís Hjálmsdóttir sannaði það og sýndi að hún er ennþá lang besti kastari landsins. Hún sigraði spjótkastkeppnina auðveldlega í gær og tók svo tvenn gullverðlaun í dag í kringlukasti og kúluvarpi. Hún kastaði kúlunni 14,88 metra og kringlunni 47,65 metra. Thelma Lind Kristjánsdóttir varð í öðru sæti með kast upp á 45,56 metra. Thelma verður meðan keppenda á Evrópumóti U23 næstu helgi.

Kúluvarparinn Óðinn Björn Þorsteinsson úr ÍR kastaði kúlunni 16,22 metra í dag og dugði það honum til sigurs. Óðinn Björn hefur verið allsráðandi í greininni síðustu ár.

Heimamaðurinn Kristinn Þór Kristinsson vann 800 metra hlaup karla. Hann hljóp hringina tvo á 1:54,68 mínútum.

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir var hlutskörpust í 200 metra hlaupi kvenna. ÍR-ingurinn hljóp sprettinn á 24,68 sekúndum.

Kristinn Torfason úr FH tók heim Íslandsmeistarartitilinn í þrístökki karla. Hann stökk 14,40 metra á Selfossi í dag.

Ari Bragi Kárason var í eldlínunni í dag.mynd/frí
Það var beðið með eftirvæntingu eftir 200 metra hlaupinu í dag þar sem Ari Bragi Kárason gat hefnt fyrir gærdaginn með sigri á liðsfélaganum úr FH, Kolbeini Heði Gunnarssyni. Kolbeinn, sem er Íslandsmethafi í greininni, var hins vegar ekki á meðal keppenda í dag. Ari Bragi tók gullverðlaunin á tímanum 21,79 sekúndum.

Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, UMSS, varð Íslandsmeistari í hástökki kvenna. Hún stökk hæðst 1,72 metra. Það gerði Kristín Lív Svabo Jónsdóttir hins vegar líka. Kristín náði sínum besta árangri frá upphafi á Selfossi í dag, en hún felldi lægri hæð heldur en Þóranna og þurfti því að sætta sig við silfur.

Andrea Kolbeinsdóttir, ÍR, sigraði í 3000 metra hlaupi kvenna. Hún hljóp á 10:37,32 mínútum.

Kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason úr ÍR tók gullverðlaun í sinni grein í dag. Hann kastaði kringlunni lengst 58,11 metra. Guðni Valur er í hópnum sem fer á Evrópumeistaramót U23.

Arnar Pétursson úr ÍR sigraði í 5000 metra hlaupi karla. Hann fór kílómetrana fimm á 15:27,91 mínútum. Þetta var hans besti árangur frá upphafi.

Boðhlaupssveit ÍR varð hlutskörpust í 4x400 metra hlaupi kvenna. Þær Helga Margrét Haraldsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Iðunn Björg Arnaldsdóttir og Guðbjörg Jóna Bjaranadóttir skipa sveit ÍR og hlupu þær á 4:05,32 mínútum. Sveit Breiðabliks varð í öðru sæti.

Hjá körlunum var það sveit FH sem fékk gullið. Þeir Arnaldur Þór Guðmundsson, Hinrik Snær Steinsson, Guðmundur Heiðar Guðmundsson og Kormákur Ari Hafliðason hlupu 4x400 metrana á 3:26,25 mínútum. Sveit Fjölnis tók silfurverðlaunin.


Tengdar fréttir

Kolbeinn og Ari á sama tíma í mark

Spretthlaupararnir úr FH, Kolbeinn Höður Gunnarsson og Ari Bragi Kárason, komu á sama tíma í mark í 100 metra hlaupi karla á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum.

Hljóp ein og varð Íslandsmeistari

Hlaupakonan Sara Hlín Jóhannsdóttir varð Íslandsmeistari í 400 metra grindahlaupi eftir að hafa þurft að hlaupa án samkeppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×