Enski boltinn

Rudiger búinn að skrifa undir hjá Chelsea

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Rudiger mun spila í treyju númer 2 fyrir Chelsea.
Rudiger mun spila í treyju númer 2 fyrir Chelsea. mynd/chelsea
Chelsea hefur staðfest kaup á þýska varnarmanninum Antonio Rudiger.





Þjóðverjinn skrifar undir fimm ára samning hjá Englandsmeisturunum, en talið er að kaupverðið hafi verið um 30 milljónir punda.

„Þetta er frábær tilfinning. Það getur ekki hver sem er fengið tækifæri til að ganga til liðs við eins stórt félag og þetta. Ég hlakka til að hitta nýju liðsfélagana og mjög stoltur af því að vera formlega leikmaður Chelsea,“ sagði Rudiger í dag.

Þessi 24 ára varnarmaður kemur til Chelsea frá Roma í ítölsku deildinni. Hann var lykilmaður í þýska landsliðinu sem vann Álfukeppni FIFA á dögunum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×