Erlent

Óttast að sautján hafi látið lífið í rútuslysi í Þýskalandi

Atli Ísleifsson skrifar
Rútan var á leið til Nürnberg þegar áreksturinn varð.
Rútan var á leið til Nürnberg þegar áreksturinn varð. Vísir/afp
Óttast er að sautján séu látnir eftir að rútubifreið lenti í árekstri við flutningabíl í Bæjaralandi í Þýskalandi í morgun.

Í frétt Sky News segir að margir fleiri hafi slasast en rútan varð alelda eftir áreksturinn.

Um 46 farþegar voru um borð í rútunni ásamt tveimur bílstjórum. Sautján er enn saknað og er óttast að flestir þeirra hafi látist.

Rútan var á leið til Nürnberg þegar áreksturinn varð, á A9-hraðbrautinni fyrir utan borgina Münchberg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×