Innlent

Meistaraverkskeppni Strætó framlengd

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Tillögurnar sem verma efstu fjögur sætin eins og stendur.
Tillögurnar sem verma efstu fjögur sætin eins og stendur. Vísir
Keppni Strætó um hönnun á strætisvagni hefur verið framlengd sökum þess að vefur keppninnar, meistaraverk.is, lá niðri í nokkra tíma í gær og aftur í nokkra tíma í dag. Í kjölfar mikillar kosningaþátttöku og fjölda tillagna sem voru komnar á vefinn hrundi kerfið en villa var í kóða vefsins.

Nú er einungis hægt að kjósa á milli vagnanna sem eru í efstu tuttugu sætunum. Einum degi hefur verið bætt við keppnina og endar hún því á miðnætti á morgun, 2. Júlí.

Hægt er að skoða og jafnframt kjósa innsendingarnar hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×