Kyrie Irving svarar engum símtölum frá Cleveland Cavaliers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júlí 2017 12:30 Kyrie Irving talar við LeBron James í leik. Vísir/Getty
Kyrie Irving vill losna frá Cleveland Cavaliers og það sem meira er hann hefur engan áhuga á að heyra í forráðamönnum liðsins. Cleveland liðið hefur komist í lokaúrslit NBA-deildarinnar undanfarin þrjú tímabil en framtíð liðsins er í uppnámi eftir að fréttir af því láku út að einn besti leikmaður liðsins væri orðinn þreyttur á því að spila í skugga LeBron James. Kyrie Irving vill að félagið skipti honum til annars liðs en hann labbar ekki í burtu frá Cleveland enda með samning til 2019. Nýjustu fréttirnar af framtíð Kyrie Irving er grein frá Jason Lloyd í The Athletic þar sem kemur fram að forráðamenn Cavaliers liðsins hafa ekki sambandi við Kyrie Irving síðan að hann gaf það út að hann vildi fara. Sport Illustrated segir frá. Jason Lloyd hefur þetta eftir nokkrum heimildarmönnum en Irving vill ekki tala við neinn frá félaginu. Eigandinn Dan Gilbert vill þó ekki horfast í augu við staðreyndir málsins og segist búast við að sjá Kyrie Irving þegar liðið hefur æfingar eftir sumarfrí. Liðfélagarnir í Cleveland horfa líka til þess að Kyrie Irving og LeBron James sættist og ákveðið að taka eitt tímabil saman en það er þó frekar ólíkleg niðurstaða. NBA-áhugafólk þarf því að bíða á Kyrie Irving vaktinni enn um sinn eða þangað til að það kemur í ljós hvort Cleveland takist að fá eitthvað fyrir bakvörðinn snjalla eða hvort málið leysti á annan hátt.
NBA Mest lesið Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Tók einn og hálfan tíma að finna ungu hjólreiðakonuna sem lést Sport Ekki ánægður með stöðu Hákons Rafns Fótbolti Þúsund Walesverjar í Dalnum og Åge kallar eftir hjálp Fótbolti Landsliðshópurinn: Sverrir kemur inn og Brynjólfur valinn Fótbolti Margbrotnaði á andliti, gæti verið dofinn fyrir lífstíð en ætlar að spila áfram Sport Í beinni: Liverpool - Bologna | Ítalskir gestir á Anfield Fótbolti Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Enski boltinn Snýr aftur heim í KR Íslenski boltinn Sakar leikmenn United um leti á æfingum Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Stjarnan - Keflavík | Hvernig svara meistararnir fyrir sig? Ljónagryfjan kvödd: „Hérna var sagan skrifuð“ GAZið: „Ætla að reyna aðeins meira á mig“ Haukar og Valur byrja Bónus deildina á sigrum „Okkur fannst það skylda að klára með sigri“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 60-54 | Kvöddu Ljónagryfjuna með sigri Ljónagryfjan kvödd í kvöld Sævar og Stefán misstu andlitið í beinni: „Það leið næstum yfir mig“ Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Sjá meira