Lífið

Jennifer Aniston og Reese Witherspoon saman í nýjum þætti HBO

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aniston og Witherspoon næstu stjörnur HBO.
Aniston og Witherspoon næstu stjörnur HBO.
Jennifer Aniston og Reese Witherspoon munu koma fram saman í nýjum sjónvarpsþætti frá HBO.

Þetta verður í fyrsta skipti sem Aniston starfar að fullu í sjónvarpsþætti frá því að þættirnir Friends hættu árið 2004 en hún hefur einbeitt sér meira að kvikmyndum undanfarinn áratug.

Aniston og Reese munu leika konur sem starfa við morgunþátt í sjónvarpi en þetta kemur fram á vef BBC en ekki hefur verið gefið út nafn þáttarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×