Leik lokið: Stoke 1 - 0 Arsenal | Nýji maðurinn skoraði fyrir Stoke Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 19. ágúst 2017 18:15 Jesé skoraði sigurmark Stoke í dag. vísir/getty Arsenal tapaði 1-0 fyrir Stoke á útivelli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Jese, nýji Spánverjinn í liði Stoke, skoraði sigurmarkið á 47. mínútu eftir undirbúning frá Saido Berahino. Alexandre Lacazette setti boltann í netið fyrir Arsenal á 72. mínútu, en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Allan kraft vantaði í lið Arsenal í dag og voru þeir ekki nógu skapandi fram á við til að ná að setja mark á leikinn í dag. Arsenal er því komið með 4 stig í deildinni eftir tvo leiki, líkt og Liverpool. Enski boltinn