Heillar dómnefndina með apótekaraþema Stefán Þór Hjartarson skrifar 18. ágúst 2017 11:15 Jónas er barþjónn á Apótekinu og mun taka apótekaraþemað alla leið í Mexíkó. Fréttablaðið/Anton Brink „
Við vorum saman níu barþjónar frá Austur-Evrópu, Íslandi og Ísrael. Við hittum þarna alls konar gúrúa úr þessum bransa sem sýndu okkur alls konar aðferðir, alls konar leiðir til að hugsa hlutina öðruvísi, hvernig maður á að koma fram á sviði fyrir framan dómarana. Þeir létu okkur líka fara í fótspor dómaranna og dæma aðra, til að láta okkur líða eins og við séum dómararnir svo við áttum okkur betur á því hvernig við verðum dæmd í keppninni. Svo fórum við hægt og rólega í gegnum þau verkefni sem við munum fara í gegnum úti – hvernig þau verða, hvernig þau verða skoruð og hvernig við gætum fengið aukastigin sem gera oft gæfumuninn,“ segir Jónas Heiðarr Guðnason, besti barþjónn landsins, um æfingabúðir sem hann er nýkominn úr í Prag. Þar var hann í undirbúningi fyrir World Class barþjónakeppnina sem fer fram í Mexíkó en Jónas leggur í hann í dag. World Class keppnin er langstærsta og virtasta barþjónakeppni sinnar tegundar í heiminum og því til mikils að vinna fyrir Jónas úti í Mexíkó. „Þetta eru fjórir þættir sem ég er að fara að taka. Tveir þeirra eru ekkert undirbúnir heima og við vinnum þá bara úti en hinir tveir eru alveg skipulagðir frá A til Ö hérna heima. Fyrst er það „challenge“ þar sem ég er að kynna mig og barinn minn og þar er ég með algjört apótekaraþema – ég verð í slopp, með sprautur og gamlar apótekarakrukkur á barnum. Svo blanda ég svokallaðan Painkiller – kokteil sem er eingöngu blandaður með áfengum hráefnum og ég hræri það saman í þurrís svo að þetta sé allt að krauma þannig að það sé svona vísinda/læknastemming í gangi. Síðan ber ég drykkinn fram í hundrað millilítra sprautu á ís og glas til hliðar og þú sprautar drykknum sjálfur í glasið. Síðan tala ég um barinn minn, hvernig við rúllum á barnum okkar – svo tala ég um kokteilmenninguna á íslandi, hvernig hún hefur þróast og hversu lítil og ný hún er. Ég tala um hvernig við á Apótekinu höfum haft áhrif á kokteilmenninguna,“ segir Jónas sem er vel stemmdur fyrir keppnina. Í tilefni þess að förinni er heitið til Mexíkó mælir Jónas með kokteilnum Paloma. „Uppáhaldsdrykkurinn minn sem er einfalt að gera heima hjá sér svona um þessar mundir, sérstaklega á sumrin, er Paloma. Það er vinsælasti drykkurinn í Mexíkó – fólk heldur að þar drekki allir Margarítur, en það er meira Ameríkaninn sem drekkur þær. Þetta er tequila og lime, eins og Margaríta, en greip er kreist eða greipgos notað og pínulítið salt. Það er auðvelt að fá sér fimm svona í sólinni og þér hefur aldrei liðið betur.“
Mest lesið Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Lífið „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Lífið Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lífið Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög Lífið María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Lífið Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Lífið Er alltaf hrædd Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Lífið Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Lífið Fleiri fréttir Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Sjá meira