Erlent

Árásarmaður skotinn í miðborg Brussel

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Svæðið þar sem árásin átti sér stað hefur verið skorðað af.
Svæðið þar sem árásin átti sér stað hefur verið skorðað af. Mynd/Twitter
Árásarmaður sem réðist að tveimur hermönnum í miðborg Brussel í Belgíu hefur verið skotinn. BBC greinir frá.

Maðurinn er sagður hafa verið vopnaður eggvopni og var hann lífshættulega særður af hermönnunum.

Í belgískum miðlum er árásarmaðurinn sagður hafa verið Sómali á þrítugsaldri en lögregla hefur ekki neinar upplýsingar um árásarmanninn.

Hermennirnir særðust lítillega í árásinni og hefur svæðinu þar sem árásin átti sér stað verið lokað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×