Sunnudagaskólinn er enginn skóli. Hann er ekki einu sinni alltaf á sunnudögum. Þess vegna gengur hann víða undir nafninu Barnastarf kirkjunnar. Barnastarfið er víða fjölsótt og fjörugt en einnig er hægt að finna litla og notalega sunnudagaskóla.
Barnastarfið sækja foreldrar eða afar og ömmur með börnin sín eða barnabörn og eiga þar gæðastund saman þar sem tónlist er í hávegum höfð. Það er sungið og dansað við fjörug lög. Fræðslan fer fram með aðstoð skemmtilegra stuttmynda þar sem Hafdís og Klemmi, Nebbi eða Tófa sýna hvað í þeim býr og þá er húmorinn ekki langt undan.
Börnin læra lífsleikni þekktra Biblíusagna og kynnast því hvað það er að biðja. Víða eru brúðuleikhús með Rebba ref og Mýslu, en þau glíma við alls konar þrautir og vangaveltur. Stundum finna þau óvænta hluti í fjársjóðskistunni sinni.
Að þessu sinni ber fræðsluefni barnastarfsins yfirskriftina Í öllum litum regnbogans, þar sem lífinu er fagnað í allri sinni dýrð. Í barnastarfinu vinnur fjöldi skemmtilegs fólks sem nýtur þess að eiga góðar stundir með börnunum og fjölskyldum þeirra.
Söngkonan Regína Ósk syngur lagið Í öllum litum regnbogans ásamt börnum úr sunnudagaskólanum. Það er titillag sunnudagaskólans í vetur. Markmiðið er að hver sunnudagaskóli æfi dansinn og sönginn og sendi inn hópmynd á barnatrú.is þar sem þau verða birt.
Komdu með í þennan dans, í von og gleði kærleikans. Fetum veg frelsarans í öllum litum regnbogans!
Barnastarf kirkjunnar hefst á höfuðborgarsvæðinu og víða um land sunnudaginn 3. september. Sjá nánar á barnatrú.is og á Facebook-síðu Barnastarfs kirkjunnar.
Lífið samstarf