Fótbolti

Axel Óskar: Fékk gæsahúð þegar ég heyrði að Stam væri að koma

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Axel Óskar á æfingu U-21 árs liðsins í Víkinni í dag.
Axel Óskar á æfingu U-21 árs liðsins í Víkinni í dag. vísir/anton
Mosfellingurinn Axel Óskar Andrésson hefur fengið tækifæri með aðalliði Reading að undanförnu.

Hann kom inn á sem varamaður í 2-0 sigri á Gillingham í enska deildabikarnum 8. ágúst og lék svo í 90 mínútur þegar Reading vann Millwall í sömu keppni 22. ágúst.

Axel er núna mættur til Íslands þar sem hann mun spila með U-21 árs landsliðinu gegn Albaníu í undankeppni EM á mánudaginn.

„Við erum með hrikalega flottan og ungan hóp. Við erum allir vinir og höfum þekkst mjög lengi sem er plús. Alvaran byrjar á mánudaginn. Albanía tapaði fyrsta leik en ég býst við hörkuleik og hlakka til að sjá hvernig þetta kemur út,“ sagði Axel í samtali við Tómas Þór Þórðarson á æfingu U-21 árs liðsins í Víkinni í dag.

Axel segist ánægður hjá Reading. Hann er að banka á dyrnar í aðalliðinu og þá samdi bróðir hans, Jökull, við enska félagið á dögunum.

„Fyrir ekkert svo löngu var ég á bekknum hjá U-21 árs liðinu, þjálfarinn var ekki hrifinn af mér og ég með hausinn niðri eins og einhver auli. Þetta er fljótt að breytast. Litli bróðir kominn með þriggja ára samning og Jón Daði [Böðvarsson] kominn inn. Það er geggjað að fá annan Íslending. Hann er þvílíkt flottur gæi, einn mesti atvinnumaður sem ég hef séð og maður getur lært helling af honum,“ sagði Axel sem spilar sem miðvörður.

Knattspyrnustjóri Reading er einnig gamall miðvörður. Sá heitir Jaap Stam og gerði garðinn frægan með liðum á borð við Manchester United, Lazio og AC Milan á sínum tíma. Axel segist geta lært mikið af Stam.

„Ég er í góðum höndum. Jaap Stam, þvílíkur leikmaður. Ég held ég hafi byrjað að horfa á leiki með honum þegar ég var fimm ára gamall. Ég fékk gæsahúð þegar ég frétti að hann væri að koma. Það eru góðir tímar framundan en þetta er undir mér komið,“ sagði Axel.

Viðtalið við Axel má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Óttar: Þurfti að finna gleðina aftur

Óttar Magnús Karlsson, leikmaður Molde, var mættur á æfingu með U-21 árs landsliðinu á sínum gamla heimavelli í Víkinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×