Tengdasonurinn skráður sem kona Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. september 2017 08:43 Jared Kushner er einn helsti ráðgjafi Donalds Trump Vísir/epa
Tengdasonur Bandaríkjaforseta, Jared Kushner, hefur kosið sem kona undanfarin átta ár ef marka má fjölmiðla ytra. Á kjörskrá í New York, sem miðilinn Wired birti nú í morgun, má sjá að Kushner er sagður vera kvenkyns. Er hann sagður hafa skráð sig fyrir þingkosningarnar í nóvember 2009 og hefur því verið talin kona þar í næstum átta ár. Kushner, sem jafnframt er einn af aðalráðgjöfum Donalds Trump, hefur ekki tjáð sig um málið og er því enn á huldu hvernig stendur á þessari skráningu. Ekki er þó talið að þetta gæti flokkast sem kosningasvik þar sem bandarísk lög gera ráð fyrir að svikahrappurinn þurfi að fylli út rangar upplýsingar af ásettu ráði.Sjá einnig: Tengdasonurinn gerði það sama og Trump gagnrýndi Hillary fyrir Að sama skapi er ekki útilokað að Jared Kushner upplifi sig sem konu, þrátt fyrir að hafa fæðst í líkama karlmanns. Hann hefur þó aldrei gefið neitt slíkt í skyn eða beðið um að notuð séu önnur en karlkyns persónufornöfn þegar um hann er rætt og ritað. Málið þykir þó einkar vandræðalegt fyrir Kushner sem gegnir margvíslegu hlutverki í Hvíta húsinu. „Hvernig getum við treyst á hann til að koma á friði í Austurlöndum nær ef hann getur ekki einu sinni fyllt út venjulegt skjal?“ er til að mynda haft eftir einum á vef Wired. Greint var frá því fyrr í vikunni að Kushner hafi jafnframt notað eigið tölvupóstfang í störfum sínum fyrir Hvíta húsið. Það þótti ekki síður vandræðalegt þar sem Trump hamraði á dómgreindarleysi mótframbjóðenda síns, Hillary Clinton, í kosningabaráttunni í fyrra fyrir að hafa gert slíkt hið sama.Hér má sjá flokkun Jareds Kushner í gögnum kjörstjórnar í New York.Wired
Tengdar fréttir Tengdasonurinn gerði það sama og Trump gagnrýndi Hillary fyrir Jared Kushner, einn helsti ráðgjafi Bandaríkaforseta, notaði eigið tölvupóstfang í störfum sínum fyrir Hvíta húsið. 25. september 2017 07:04 Fimm starfsmenn Hvíta hússins til viðbótar notuðu eigin tölvupósta Bandaríkjaforseti og nánasta fjölskylda hans og ráðgjafar eru sakaðir um hræsni eftir að hafa krafist þess að Hillary Clinton yrði fangelsuð fyrir að nota eigin tölvupóst í starfi. 26. september 2017 10:18 Kushner: Framboð Trump var of óskipulagt til að eiga samráð við Rússa Tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta útskýrði fyrir hópi lærlinga í Bandaríkjaþingi að forsetaframboð tengdaföður síns hafi verið of glundroðakennt til að það hafi getað staðið í samráði við rússnesk stjórnvöld. Blaðafulltrúi Hvíta hússins segir að forsetinn hafi komið að misvísandi yfirlýsingu sem sonur hans gaf út um umdeildan fund með rússneskum lögmanni. 1. ágúst 2017 18:38 Mest lesið Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Innlent „Ég lagði allt undir“ Innlent Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það Innlent Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Erlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Fleiri fréttir Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Gerðu árásir á útibú meintrar fjármálaþjónustu Hezbollah Þrír táningar létust í bílslysi í Svíþjóð Enn rafmagnslaust á Kúbu „Tilraun Hezbollah til að ráða mig og konu mína af dögum voru stór mistök“ Aftur rafmagnslaust á Kúbu Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Sjá meira
Tengdasonurinn gerði það sama og Trump gagnrýndi Hillary fyrir Jared Kushner, einn helsti ráðgjafi Bandaríkaforseta, notaði eigið tölvupóstfang í störfum sínum fyrir Hvíta húsið. 25. september 2017 07:04
Fimm starfsmenn Hvíta hússins til viðbótar notuðu eigin tölvupósta Bandaríkjaforseti og nánasta fjölskylda hans og ráðgjafar eru sakaðir um hræsni eftir að hafa krafist þess að Hillary Clinton yrði fangelsuð fyrir að nota eigin tölvupóst í starfi. 26. september 2017 10:18
Kushner: Framboð Trump var of óskipulagt til að eiga samráð við Rússa Tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta útskýrði fyrir hópi lærlinga í Bandaríkjaþingi að forsetaframboð tengdaföður síns hafi verið of glundroðakennt til að það hafi getað staðið í samráði við rússnesk stjórnvöld. Blaðafulltrúi Hvíta hússins segir að forsetinn hafi komið að misvísandi yfirlýsingu sem sonur hans gaf út um umdeildan fund með rússneskum lögmanni. 1. ágúst 2017 18:38