Liverpool gerði 1-1 jafntefli á útivelli gegn Spartak Moskvu í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Fernando skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu á 23. mínútu, en Philippe Coutinho jafnaði fyrir Liverpool á 31. mínútu eftir stoðsendingu frá Sadio Mane.
Liverpool réði lögum og lofum á vellinum í kvöld, en náðu ekki að skora sigurmarkið.
Mane var aftur í liði Liverpool eftir að hafa verið í leikbanni, en Jurgen Klopp stillti upp fjórum framherjum í leiknum, Mane, Coutinho, Roberto Firmino og Mohamed Salah.
Liverpool hefur nú gert jafntefli í fyrstu tveimur leikjum sínum í riðlinum og eru í öðru sæti E-riðils.
Annað jafntefli Liverpool
