Menning

Ný mynd um sjötuga hátíð

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Óskar við mynd frá stórhátíðinni í Reykholti fyrir 70 árum.
Óskar við mynd frá stórhátíðinni í Reykholti fyrir 70 árum.
Snorrahátíðin í júlí 1947 var meiriháttar stórhátíð, ein sú fjölmennasta sem haldin hafði verið hér á landi. Þá var styttan af Snorra vígð, gjöf Norðmanna til Íslendinga.

Talið er að 14 til 15 þúsund manns hafi verið á staðnum og hátíðahöldin á eftir stóðu í heila viku,“ segir Óskar Guðmundsson rithöfundur sem ásamt Erlendi Sveinssyni, forstöðumanni Kvikmyndasafnsins, á heiður að nýrri kvikmynd um téða hátíð. Hún verður sýnd í fullri lengd í Reykholti á þriðjudaginn klukkan 20.30. 

Óskar segir líka fylgst með norsku gestunum sem komu til landsins í myndinni.

„Hingað kom floti frá Noregi, þrjú herskip og eitt farþegaskip. Með þeim var sendinefnd undir forystu krónprinsins Ólafs sem síðar varð konungur. Margir höfðu fest viðburðina á filmur og þetta er lengri útgáfa en við frumsýndum í sumar.“ 

Myndin er þögul en Óskar ætlar að segja frá því sem fyrir augu ber. Svo verða umræður og kaffiveitingar seldar á 500 krónur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.