Eru leikmenn Everton bara að bíða eftir að Koeman verði rekinn? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. október 2017 11:00 Það er þungt yfir Gylfa Þór Sigurðsson og félögum í Everton þessa dagana. Vísir/Getty
Útlitið er ekki bjart hjá Ronald Koeman, knattspyrnustjóra Everton, eftir tap á heimavelli á móti Burnley í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Veðbankar og aðrir eru farnir að telja niður þar til Hollendingurinn verði rekinn og fréttirnar úr klefanum ýta aðeins undir slíkar vangaveltur. Everton missti niður forystu í Evrópuleik á móti Apollon Limassol í vikunni á undan og staðan er slæm bæði í ensku úrvalsdeildinni og í Evrópudeildinni. Það er mikið eftir af tímabilinu en eftir að hafa safnað að sér nýjum og rándýrum leikmönnum í sumar þá er þessi slæma byrjun heldur betur að kalla á gagnrýnisraddir úr öllum áttum. Everton er nú aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsæti og The Sun skrifar um það að leikmenn Everton telji að hollenski knattspyrnustjórinn sé sjálfur bara að bíða eftir því að hann verði rekinn frá Goodison Park. Reyndari leikmenn Everton hafa samkvæmt heimildum Sun tekið eftir því að Ronald Koeman er orðinn fáskiptinn í öllum samskiptum og að hann virki áhugalaus. Koeman neitaði að tala um framtíð sína við blaðamenn eftir tapið á móti Burnley um helgina sem var það fjórða hjá liðinu í fyrstu sjö deildarleikjunum. Þessi slæma röð úrslita hefur gerbreytt Koeman og samskiptum hans við leikmenn Everton og pressan gæti hreinlega verið að fara með hann. Koeman hefur eytt meira en 220 milljónum punda á þeim fimmtán mánuðum sem hann hefur verið knattspyrnustjóri Everton þar á meðal 145 milljónum í sumar þar sem hann keypti meðal annars Gylfa Þór Sigurðsson frá Swansea fyrir metfé. Farhad Moshiri, eigandi Everton, hefur reynt að róa fólk eftir að stuðningsmenn Everton fóru að heimta að Koeman verði rekinn. Everton er samt líklega farið að horfa í kringum sig með nýjan framtíðarknattspyrnustjóra.
Enski boltinn Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótbolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira