Stórkostlegt mark Boufal dugði Dýrlingunum til sigurs | Sjáðu markið Kristinn Páll Teitsson skrifar 21. október 2017 18:15 Sofiane Boufal skoraði eina mark leiksins fyrir Southampton í 1-0 sigri gegn West Brom í lokaleik dagsins í enska boltanum en þetta var fyrsta mark hans á tímabilinu. Með sigrinum lyftir Southampton sér upp í tíunda sæti ensku deildarinnar í bili með tólf stig en West Brom sem byrjaði tímabilið á tveimur sigurleikjum í röð hefur ekki unnið í síðustu sjö leikjum. Heimamenn voru sterkari aðilinn allan leikinn og átti Ryan Bertrand bestu tilraun þeirra í fyrri hálfleik þegar aukaspyrna hans hafnaði í stönginni. Var staðan markalaus í hálfleik þrátt fyrir töluverða yfirburði Dýrlinganna. Það stefndi allt í markalaust jafntefli þegar varamaðurinn Boufal skoraði stórkostlegt sigurmark leiksins. Vann hann boltann á eigin vallarhelming, lék á fjóra varnarmenn í leið sinni að markinu og skoraði með hnitmiðuðu skoti. Reyndist þetta glæsimark vera eina mark leiksins en Boufal sem er dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins er því kominn á blað á þessu tímabili eftir vonbrigðatímabil á fyrsta ári sínu í enska boltanum. Enski boltinn