Sport

NFL verður að losa sig við þennan leikmann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Burfict er ekki sá vinsælasti í deildinni.
Burfict er ekki sá vinsælasti í deildinni. vísir/getty
Ein stærsta stjarnan í NFL-deildinni, Le'Veon Bell, hefur fengið sig fullsaddan af ofbeldismanninum Vontaze Burfict sem spilar með Cincinnati Bengals.

Burfict er hrikalega grófur leikmaður og fer oft langt yfir strikið í hegðun sinni á vellinum. Nú síðast sparkaði hann í hausinn á Roosevelt Nix, leikmanni Steelers.

„Þessi gaur verður að fara. Þetta er ekki fótbolti,“ skrifaði Bell á Twitter en Bell spilar einnig með Steelers. Burfict var með alls konar stæla í leiknum og neitaði meðal annars að taka í höndina á leikmönnum Steelers fyrir leik.

„Það er ótrúlegt að deildin sætti sig við þessa hegðun. Ef Roosevelt hefði svarað fyrir sig þá hefði honum verið refsað.“

Burfict byrjaði síðustu leiktíð í þriggja leikja banni fyrir gróf brot gegn Steelers leiktíðina þar á undan. Hann byrjaði þessa leiktíð einnig á þriggja leikja banni fyrir gróf brot. Síbrotamaður.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×