Takast á um gervigrasvöll á Dalvík Sveinn Arnarsson skrifar 23. október 2017 06:00 Starfsemi yngri flokka í knattspyrnu er af skornum skammti enda aðstöðu ábótavant. Vísir/Vilhelm
Tekist er á um byggingu gervigrasvallar í fullri stærð á Dalvík sem myndi kosta sveitarfélagið um 240 milljónir króna. Formaður íþrótta- og æskulýðsráðs Dalvíkurbyggðar hefur áhyggjur af því að kostnaður, rekstur og viðhald gervigrasvallar sé of stór fjárfesting fyrir aðeins 1.900 manna sveitarfélag. Minnihlutinn er sammála því mati og bendir á að starfsemi yngri flokka í knattspyrnu sé af skornum skammti. „Eins og staðan er núna er enginn 2. og 3. flokkur starfandi í Dalvíkurbyggð og fjórði flokkur dró sig út úr Íslandsmótinu síðastliðið sumar,“ segir Guðmundur St. Jónsson, oddviti J-listans í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar. „Meistaraflokkur er að mestu leyti skipaður leikmönnum sem ekki komast í aðallið KA og Þórs á Akureyri. Á þessu ári spilaði meistaraflokkur Dalvíkur/Reynis væntanlega um 10 heimaleiki. Okkar skoðun er að bygging á heilum gervigrasvelli muni ekki hafa mikil áhrif á þá þróun sem verið hefur,“ segir svo í bókun Guðmundar á síðasta fundi byggðaráðs. Kristinn Ingi Valsson, formaður íþrótta- og æskulýðsráðs Dalvíkurbyggðar og fulltrúi meirihlutans, var eini meðlimur ráðsins sem greiddi atkvæði gegn hugmyndinni um gervigrasvöll á síðasta fundi ráðsins. „Ég tel að ávinningur af gervigrasvelli umfram þá aðstöðu sem nú er í boði sé ekki á pari við kostnaðinn við byggingu gervigrasvallar, rekstur hans og viðhald,“ segir Kristinn Ingi en tekur fram að ef sveitarstjórn og byggðaráð telji að svo sé ekki þá fagni hann því og segir gervigrasvöll bæta aðstöðu til knattspyrnuiðkunar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Kom ekkert annað til greina en Miðflokkurinn Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Slátur og stuð í félagsheimilinu á Blönduósi Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Lætur af störfum sem bæjarstjóri Voga Vill leiða Viðreisn í Suðurkjördæmi Sjá meira