Erlent

De Rossi sakar Seagal um kynferðislega áreitni: Renndi niður buxunum og ég hljóp út

Stefán Árni Pálsson skrifar
Portia de Rossi greinir frá kynferðislegri áreitni af hálfu Steven Segal.
Portia de Rossi greinir frá kynferðislegri áreitni af hálfu Steven Segal.

„Síðasta áheyrnarprufa mín fyrir Steven Segal mynd fór fram inni á skrifstofunni hans. Hann sagði að það væri rosalega mikilvægt að það væru góðir straumar á milli okkar á setti, og því næst lét hann mig setjast niður og renndi niður leðurbuxunum sínum.“



Svona hefst færsla frá leikkonunni Portia de Rossi á Twitter en hún segist hafa því næst hlaupið út og sloppið frá leikaranum. Þau störfuðu aldrei saman.



Porita de Rossi er gift spjallþáttastjórnandanum Ellen DeGeneres en de Rossi sló fyrst í gegn í gamanþáttunum Ally McBeal. Þá fór hún með eitt aðalhlutverkanna í Arrested Development.



Ásakanirnar á hendur Segal koma í kjölfar háværrar umræðu í skemmtanabransanum í Hollywood þar sem hver karlmaðurinn á fætur öðrum hefur verið sakaður um kynferðislega áreitni. Þar hefur mest borið á leikaranum Kevin Spacey og leikstjóranum Harvey Weinstein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×