Bankar lækka kostnað með nýjum kerfum Kristinn Ingi Jónsson skrifar 9. nóvember 2017 08:00 Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, og Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reiknistofu bankanna. vísir/hanna
Ný innlána- og greiðslukerfi, sem Landsbankinn mun taka í notkun síðar í mánuðinum, geta leitt til hagræðingar í rekstri íslenska bankakerfisins, að sögn Lilju Bjarkar Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans. Bankinn verður sá fyrsti hér á landi sem innleiðir kerfin. Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reiknistofu bankanna (RB), segir að með tíð og tíma muni kerfin draga talsvert úr rekstrarkostnaði. Það sé mikilvægt, enda sé kostnaðurinn af upplýsingatækni veigamikill þáttur í heildarkostnaði bankanna og hærri en gengur og gerist erlendis. Nýju kerfin, sem leysa af hólmi mörg eldri tölvukerfi, hafa á undanförnum árum verið þróuð í samstarfi við evrópska hugbúnaðarfyrirtækið Sopra Banking Software. „Þetta er tvíþætt verkefni. Annars vegar er verið að innleiða ný, stöðluð og alþjóðleg greiðslu- og innlánakerfi fyrir Landsbankann og Íslandsbanka frá Sopra Banking Software og hins vegar er verið að búa til nýtt samskipta- og gagnalag fyrir íslenskan fjármálamarkað sem mun einfalda til muna þróun nýrra lausna og samvinnu banka við þriðja aðila, svo sem fjártæknifyrirtæki,“ segir Friðrik Þór.Áratugagamalt „Þrátt fyrir að núverandi grunnkerfi hafi á sínum tíma verið byltingarkennt – sem fyrsta rauntímagreiðslukerfi í heiminum – þá eru hlutar þess orðnir hátt í 40 ára gamlir og kostnaðurinn þar af leiðandi orðinn nokkuð hár. Þeir byggja á gamalli tækni sem erfitt er að nýta til þess að mæta kröfum nútímafjármálastarfsemi,“ nefnir hann. Nýju kerfin verði hagkvæmari og einfaldari í rekstri. „Hagkvæmnin felst í því að um alþjóðlegt, staðlað kerfi er að ræða þar sem fjöldi erlendra fjármálafyrirtækja samnýtir þróunarlausnir og deilir þannig kostnaðinum, en stór hluti nýrra krafna til slíkra kerfa kemur til vegna breytinga á alþjóðlegum lögum,“ bætir Friðrik Þór við. Lilja Björk segir nýju kerfin gera það að verkum að bankinn muni geta brugðist hraðar við þörfum markaðarins. „Þau munu auðvelda okkur að bregðast við þegar eftirspurn á markaðinum krefst þess eða þegar við sjáum tækifæri á borðinu. Í gamla kerfinu var það ekki einfalt. Á tímum sem þessum, þegar bankaviðskipti eru að taka hröðum breytingum, er afar mikilvægt að við getum boðið upp á nýjungar sem henta markaðinum hverju sinni án þess að þurfa að ráðast í mikla forritunarvinnu eða fjárfestingu í fólki og ferlum.“ Um sé að ræða stöðluð alþjóðleg kerfi sem viðhaldið er af stóru fyrirtæki sem hefur starfsemi víðs vegar í heiminum. Ákveðið öryggi sé fólgið í því. „Breytingin felur í sér einföldun á tækniumhverfi bankans þar sem hægt verður að fasa út ýmsum kerfum og viðbótum sem bankinn hefur þurft að byggja ofan á eldri grunnkerfi RB. Þetta er eitt af ótal verkefnum sem leggjast öll á eitt um að lækka kostnað í bankakerfinu.“Horfa fram á breytt umhverfi Lilja Björk segir að takmarkaður fjöldi fólks hafi getað haldið gamla kerfinu við. Það hafi verið orðin áskorun að manna viðhald og þróun til framtíðar. „Við horfum nú fram á breytt umhverfi og þá er mjög gott fyrir bankann að hafa traustan og öflugan grunn sem við getum byggt á til framtíðar. Við erum því í ólíkri stöðu miðað við marga vestræna banka sem hafa búið við sömu kerfin í áratugi og eiga eftir að uppfæra.“ Landsbankinn hyggst innleiða kerfið 20. nóvember en af þeirri ástæðu þarf að skerða þjónustu í netbönkum bankans helgina 18. til 19. nóvember.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira