Segja formann Stúdentaráðs vanhæfan til að fjalla um nýja stúdentagarða Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 8. nóvember 2017 13:46 Ragna Sigurðardóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Vaka – félag lýðræðissinnaðra stúdenta við Háskóla Íslands, hefur lýst yfir vantrausti á Rögnu Sigurðardóttur, formann Stúdentaráðs skólans, í máli er varðar byggingu nýrra stúdentagarða við Gamla Garð við Hringbraut. Stúdentaráðsliðar Vöku krefjast þess að Ragna víki sem fulltrúi nemenda úr samráðshópi Háskóla Íslands, Reykjavíkurborgar og Félagsstofnunar stúdenta um málið. Í ályktun frá Vöku segir að Ragna hafi verið tvísaga í málflutningi og afstöðu sinni vegna málsins. „Stúdentar verða að geta treyst því að formaður Stúdentaráðs standi með þeim í svo stóru máli en láti ekki þrýsting annarra ráða um afstöðu sína.“ Ragna Sigurðardóttir gegnir embætti formanns Stúdentaráðs í umboði Röskvu og þá situr hún einnig fyrir hönd nemenda í Háskólaráði, sem er æðsta ákvörðunarvald háskólans. Í ályktun Vöku segir að þann 23. ágúst síðastliðinn hafi Stúdentaráð samþykkt, með stuðningi bæði Röskvu og vöku, bókun sem send var Háskólaráði þar sem þrýst var á ráðið að standa við ákvörðun um byggingu stúdentagarða við Gamla Garð.Hafi ekki framfylgt afstöðu Stúdentaráðs Þann 7. september hafi Ragna hins vegar samþykkt á fundi Háskólaráðs bókun þess efnis að endurskoða ætti ákvörðun um byggingu stúdentagarða á reitnum í ljósi afstöðu Minjastofnunar og Húsafriðunarnefndar. „Með atkvæði formanns Stúdentaráðs með bókuninni verður ekki annað skilið en að hún láti álit Minjastofnunar og Húsafriðunarnefndar vega þyngra en hagsmuni stúdenta, þvert á yfirlýstan vilja Stúdentaráðs,“ segir í ályktun Vöku. Þar segir einnig að á Stúdentaráðsfundi þann 25. September hafi Ragna ekki upplýst ráðið um bókun Háskólaráðs, né atkvæðagreiðslu sína með henni. Í október hafi svo verið stofnaður samráðshópur HÍ, Reykjavíkurborgar, FS og nemenda til að fjalla um byggingu stúdentagarðanna. Hópnum var gert að skila niðurstöðu við árslok sem lögð verður fyrir Háskólaráð. „Með stofnun þessa hóps er ljóst að ákvörðun í málinu mun dragast verulega og frekari seinkanir verða á uppbyggingu stúdentagarða fyrir nemendur. Formaður Stúdentaráðs hefur tilkynnt Stúdentaráði að hún muni taka sæti í hópnum sem fulltrúi nemenda. Í ljósi þess að hún hefur ekki framfylgt afstöðu Stúdentaráðs í málinu fram til þessa leggst Vaka alfarið gegn því að svo verði.”Málinu frestað Vaka fór fram á að haldinn yrði stúdentaráðsfundur sem allra fyrst vegna málsins og fór sá fundur fram í gær. „Í krafti fjölda síns þvinguðu fulltrúar Röskvu hins vegar fram frestun á málinu og var Stúdentaráðsliðum í kjölfarið meinað að ræða málið, þrátt fyrir að fjöldi þeirra væri á mælendaskrá. Meirihluti Stúdentaráðs, skipaður fulltrúum Röskvu, bar fyrir sig skort á upplýsingum og skamman tíma til að kynna sér málið. Öll gögn í málinu lágu þó fyrir á Stúdentaráðsfundi þann 23. ágúst þegar Stúdentaráð samþykkti bókun um málið. Síðan þá hefur aðeins bæst við bókunin frá Háskólaráði sem er aðgengileg öllum stúdentum og formaður ráðsins hefði átt að gera Stúdentaráði grein fyrir á Stúdentaráðsfundi 25. september en kaus að gera ekki,“ segir í tilkynningu frá Vöku. Vaka segir það nauðsynlegt að fleiri stúdentagarðar rísi sem fyrst, þar sem þúsund stúdentar bíði eftir húsnæði. Þá stóðu félagar í Röskvu fyrir mótmælum við Gamla Garð í síðustu viku þar sem endurskoðun á byggingu stúdentagarðanna var í brennidepli.
Tengdar fréttir „Með ólíkindum að stúdentar þurfi að standa í slag við háskólann“ Stúdentahreyfingin Röskva mun í dag standa fyrir mótmælum við Gamla Garð þar sem endurskoðun Háskóla Íslands á fyrirhugaðri uppbyggingu stúdentagarða verður í brennidepli. 2. nóvember 2017 07:28 Stefnir í harða deilu milli Félagsstofnunar stúdenta og Minjastofnunar vegna nýbygginga á háskólasvæðinu Minjastofnun leggst alfarið gegn því að hugmyndir Félagsstofnunar stúdenta um byggingu við hlið Gamla Garðs á háskólalóðinni verði að veruleika. Byggingin muni skyggja á og raska einstæðri og mikilvægri skipulagsheild með óafturkræfum hætti. Félagsstofnun segir Minjavernd ekki hafa lögsögu í málinu enda sé Gamli Garður ekki friðaður. 15. júní 2017 21:00 Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Innlent Fleiri fréttir Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Lætur af störfum sem bæjarstjóri Voga Vill leiða Viðreisn í Suðurkjördæmi Eldur kviknaði í bílskúr Helgi hættur á Heimildinni Halla Hrund gengin til liðs við Framsókn og tekur sæti formannsins Ásmundur Einar skipar tvo skrifstofustjóra Sjá meira
„Með ólíkindum að stúdentar þurfi að standa í slag við háskólann“ Stúdentahreyfingin Röskva mun í dag standa fyrir mótmælum við Gamla Garð þar sem endurskoðun Háskóla Íslands á fyrirhugaðri uppbyggingu stúdentagarða verður í brennidepli. 2. nóvember 2017 07:28
Stefnir í harða deilu milli Félagsstofnunar stúdenta og Minjastofnunar vegna nýbygginga á háskólasvæðinu Minjastofnun leggst alfarið gegn því að hugmyndir Félagsstofnunar stúdenta um byggingu við hlið Gamla Garðs á háskólalóðinni verði að veruleika. Byggingin muni skyggja á og raska einstæðri og mikilvægri skipulagsheild með óafturkræfum hætti. Félagsstofnun segir Minjavernd ekki hafa lögsögu í málinu enda sé Gamli Garður ekki friðaður. 15. júní 2017 21:00