Jafntefli hjá Rúnari Alex

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Rúnar Alex varði vítaspyrnu í síðasta leik
Rúnar Alex varði vítaspyrnu í síðasta leik vísir/getty
Rúnar Alex Rúnarsson var á sínum stað í marki Nordsjælland sem gerði jafntefli við Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Það byrjaði ekki vel fyrir Rúnar sem þurfti að sækja boltann í netið eftir aðeins átta mínútna leik.

Nordsjælland jafnaði leikinn á 48. mínutu með marki frá Emiliano Marcondes áður en Michael Lumb varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark sem kom heimamönnum í 2-1 forystu.

Mikkel Rygaard Jensen lét reka sig af velli á 70. mínútu og þurfti Lyngby því að leika manni færri síðustu tuttugu mínúturnar.

Liðið náði hins vegar að tryggja sér stig með marki frá David Boysen á síðustu mínútum leiksins.

Nordsjælland er fallið niður í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Midtjylland sem vermir toppsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira