Menning

Vel þekkt í Evrópu og er alger perla

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Magnús segir það stefnu hjá kórunum hans að taka eitthvað nýtt íslenskt á hverju ári. Það verður gert í kvöld.
Magnús segir það stefnu hjá kórunum hans að taka eitthvað nýtt íslenskt á hverju ári. Það verður gert í kvöld.
Messan eftir tónskáldið Rheinberger frá Liecht­enstein sem flutt verður af söngsveitinni Fílharmóníu í Langholtskirkju í kvöld er talin meðal fegurstu tónverka 19. aldar. Höfundurinn hlaut verðlaun úr hendi Leós páfa XIII fyrir hana árið 1879. 

Magnús Ragnarsson, stjórnandi Fílharmóníu og organisti í Langholtskirkju, segir þó ekki um þekkt verk á Íslandi að ræða. „En messan er vel þekkt úti í Evrópu og er alger perla. Ég hef stjórnað flutningi hennar í heild sinni einu sinni áður með Kammerkór Áskirkju, Í fyrra fluttum við í Fílharmóníu svo tvo kafla úr henni og eftir það fór fólk í kórnum að ýta á að taka hana alla því hún væri svo flott.“

Meðal þess sem einnig prýðir efnisskrá kvöldsins eru tvö lög eftir ungt tónskáld, Þorvald Örn Davíðsson. „Þetta eru falleg lög og það er stefna hjá kórunum mínum að taka eitthvað nýtt íslenskt á hverju ári, eða í hæsta lagi fimm ára gamalt. Það er svo gaman að styðja við nýsköpun.

Þorvaldur Örn er kollegi minn hér í Langholtskirkju því hann stjórnar hér tveimur kórum, Gradualekórnum og Graduale Nobile. Hann er fjölhæfur, spilar á orgel, stjórnar kórum og semur flotta tónlist.“

Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 20. Miðaverð er 2.000 krónur en frítt fyrir börn 12 ára og yngri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.