Lífið

Innlit í fataherbergi Hönnu Rúnar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Atvinnudansarinn Hanna Rún Bazev Óladóttir er þekkt fyrir sinn fatastíl en hún er með eitt herbergi heima hjá sér bara fyrir föt og fylgihluti.
Atvinnudansarinn Hanna Rún Bazev Óladóttir er þekkt fyrir sinn fatastíl en hún er með eitt herbergi heima hjá sér bara fyrir föt og fylgihluti. Vísir/Sylvía Rut
Atvinnudansarinn Hanna Rún Bazev Óladóttir er með stóran fylgjendahóp á Snapchat. Hanna Rún er þekkt fyrir sinn fatastíl, bæði inni á dansgólfinu og fyrir utan það. Fylgjendur hennar hafa þá sérstaklega tekið eftir háum hælaskóm hennar og þeirri staðreynd að hún sést sjaldan án þess að vera með mikið af skartgripum á sér úr gulli og rósagulli, kemur það nú kannski ekki á óvart þar sem faðir hennar er gullsmiður.

Fataherbergi Hönnu Rúnar á heimili hennar í Mosfellsbæ hefur vakið athygli fylgjenda hennar á Snapchat og líktu einhverjir því við fataskáp Kardashian systra. Við fengum að skoða fataherbergið og ræddum við Hönnu Rún um danskjólana og dansskóna sem hún skreytir sjálf með steinum og perlum. 

Hönnu Rún líður ótrúlega vel í Mosfellsbæ með Nikita eiginmanni sínu, syni og 12 ára hundi fjölskyldunnar en hefur þó ekki ákveðið hvort hún ætli að búa á Íslandi næstu ár, þar sem kemur til greina hjá hjónunum að taka þátt í raunveruleikaþættinum Dancing With The Stars í framtíðinni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.