Crystal Palace úr fallsæti með sannfærandi sigri Dagur Lárusson skrifar 16. desember 2017 14:30 Benteke skorar í dag vísir/getty Leicester City og Crystal Palace mættust í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en leikurinn fór fram á King Power Stadium. Það voru gestirnir í Crystal Palace sem byrjuðu leikinn mun betur og sóttu stíft fyrstu mínúturnar. Voru Wilfried Zaha og Christian Benteke þar í aðalhlutverki. Gestirnir sóttu meira og það skilaði sér síðan á 19. mínútu þegar Andros Townsend gaf frábæra fyrigjöf á Christian Benteke sem skallaði boltann í netið. Þetta var fyrsta útivallarmark Palace á leiktíðinni. Allt virtist stefna í það staðan yrði 0-1 í leikhlé en þá steig Wilfried Zaha fram og skoraði eftir frábæra skyndisókn Palace. Crystal Palace hélt yfirburðum sínum á vellinum í seinni hálfleiknum og var líklegra að bæta við þriðja markinu fremur en Leicester að minnka muninn. Ndidi fékk að líta sitt annað gula spjald á 61. mínútu og þar með rautt. Crystal Palace skoraði síðan sitt þriðja mark undir blálokin en þar var á ferðinni Bakary Sako. Eftir það var ekki aftur snúið og vann Crystal Palace því mikilvægan sigur og lyfti sér upp úr fallsæti og upp í það fjórtánda. Enski boltinn