Tveggja ára fangelsi fyrir ögrandi tónlistarmyndband Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 12. desember 2017 21:47 Shyma er 25 ára gömul og heitir réttu nafni Shaimaa Ahmed. Skjáskot
Egypska poppstjarnan Shyma hefur verið dæmd til tveggja ára fangelsisvistar vegna tónlistarmyndbands þar sem hún sést dansa á undirfötunum og borða banana. Shyma er 25 ára gömul og heitir réttu nafni Shaimaa Ahmed. Hún var handtekin í síðasta mánuði eftir að myndbandið vakti hneykslan í heimalandi hennar. Hún var í dag fundin sek um að hafa hvatt til ólifnaðar og fyrir að gefa út ósæmilegt myndband. Leikstjórinn var einnig dæmdur í tveggja ára fangelsi. Áður en hún var handtekin hafði Shyma beðið fólk afsökunar sem hafði móðgast. „Ég bjóst ekki við því að þetta myndi gerast og að ég yrði fyrir svo miklum árásum frá fólki,“ skrifaði hún á Facebook síðu sem síðan hefur verið eytt.Myndbandið umdeilda má sjá hér fyrir neðan.Þetta er ekki í fyrsta sinn sem egypskir dómstólar dæma svona í málum listafólks þar í landi. Á síðast ári voru þrír dansarar dæmdir til sex mánaða fangelsisvistar fyrir að hvetja til ólifnaðar í tónlistarmyndbandi. Þá á ein söngkona yfir höfði sér stefnu fyrir að hafa „dreift ögrandi efni“ vegna þess að hún sagði að fólk gæti orðið veikt af því að drekka úr ánni Níl. Sherine Abdel Wahab var stefnt í síðasta mánuði eftir að myndband fór í dreifingu þar sem hún var beðin um að syngja lagið Mashrebtesh Men Nilha eða „Hefur þú drukkið úr ánni Níl?“ á tónleikum. Hún svaraði með orðunum „að drekka úr Níl myndi láta mig fá blóðögðuveiki,“ sem er sjúkdómur af völdum sníkjuorms í blóðrás. Samtök tónlistarmanna í Egyptalandi tilkynntu í gær að Abdel Wahab væri bannað að koma fram á tónleikum í Egyptalandi í tvo mánuði.
Mest lesið Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Ísraelar herja á miðborg Beirút Erlent Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni Innlent Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Innlent Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Fleiri fréttir Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Sjá meira