Hyggst gefa út skuldabréf fyrir allt að 30 milljarða Kristinn Ingi Jónsson skrifar 20. desember 2017 09:00 Almenna leigufélagið átti 1.214 íbúðir, samtals að stærð 110 þúsund fermetra, í lok júnímánaðar síðastliðins en heildarvirði þeirra nam þá 39,1 milljarði króna. Vísir/Vilhelm
Stjórn Almenna leigufélagsins hefur samþykkt að gefa út skuldabréf á markaði fyrir allt að 30 milljarða króna. Stefnir félagið, sem er í eigu sjóðs í rekstri GAMMA Capital Management, að því að gefa út bréf fyrir allt að 6 til 12 milljarða króna í fyrsta útboði, að því er fram kemur í nýrri kynningu félagsins fyrir fjárfesta. Tilgangur skuldabréfaútgáfunnar er meðal annars að einfalda fjármögnun félagsins og lækka fjármagnskostnað með því að endurfjármagna núverandi skuldir og auka fjölbreytileika í fjármögnun. Er jafnframt gert ráð fyrir að frekari útgáfa skuldabréfa verði nýtt til að stækka eignasafn félagsins. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og Lögmenn Lækjargötu veittu félaginu ráðgjöf við gerð útgáfurammans og grunnlýsingar. Almenna leigufélagið átti 1.214 íbúðir, samtals að stærð 110 þúsund fermetra, í lok júnímánaðar síðastliðins en heildarvirði þeirra nam þá 39,1 milljarði króna samkvæmt verðmati KPMG. Um helming eigna félagsins má finna í Reykjavík og 17 prósent í nágrannasveitarfélögum innan höfuðborgarsvæðisins. Er um 91 prósent af eignasafninu í langtímaleigu. Stefnt er að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað á næstu 18 til 24 mánuðum, en í fjárfestakynningunni er tekið fram að undirbúningur að henni sé þegar hafinn. Felst hann meðal annars í endurfjármögnun skulda, hagræðingu í rekstri og flutningi félagsins í nýjar höfuðstöðvar að Suðurlandsbraut.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Viðskipti innlent Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Verulega minni verðbólga Viðskipti innlent Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Viðskipti innlent Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Salzburg úr sögunni hjá Play Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Frá RÚV til Coca-Cola Verulega minni verðbólga Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Sjá meira