Fólk þarf ekkert að óttast Magnús Guðmundsson skrifar 26. ágúst 2017 11:30 Söngkournar Elfa Dröfn Stefánsdóttir og Unnur Helga Möller í hlutverkum sínum í Piparjúnkan og þjófurinn.
Akureyrarvaka stendur sem hæst nú um helgina og á meðal skemmtilegra viðburða má nefna óperusýningu í Samkomuhúsinu. Það er ekki á hverjum degi sem ráðist er í óperusýningar utan höfuðborgarsvæðisins og því er hér á ferðinni frábært tækifæri fyrir alla til þess að kynnast óperuforminu nánar enda er meira að segja frítt á sýninguna sem verður í dag kl. 15 svo vonandi fjölmenna bæði heimamenn jafnt sem ferðalangar á meðan húsrúm leyfir. Óperan sem um ræðir er gamanóperan Piparjúnkan og þjófurinn, gamanópera í einum þætti eftir tónskáldið Gian Carlo Menotti.Ópera á Akureyri Ein af söngvurunum er Elfa Dröfn Stefánsdóttir og hún segir að uppsetningu óperunnar megi einfaldlega rekja til vilja fólks til þess að vinna saman. „Þetta kom nú bara þannig til að við Jenný Lára leikstjóri höfum verið vinkonur lengi og erum nú báðar búsettar hér eftir að hafa farið í okkar mastersnám. Hún í leiklist og leikstjórn en ég í óperusöng og okkur langaði einfaldlega að búa okkur til vettvang og gera eitthvað skemmtilegt. Með því að setja upp óperu þá náum við að sameina þau listform sem við höfum sérhæft okkur í og okkar áhugasvið þar sem ég er með sönghlutverk en Jenný Lára leikstýrir.“ Aðspurð hvernig hafi gengið að ná saman í hóp til þess að koma á legg óperusýningu á Akureyri segir Elfa Dröfn að þau hafi hóað saman í hóp þar sem allir hafi tengingu norður: „Fólk sem annað hvort býr hér eða á ættir hingað að rekja og það gekk bara alveg ágætlega. Það eru fjögur hlutverk í óperunni en ég syng piparjúnkuna Miss Todd, Edda Björk Jónsdóttir syngur nágrannakonu mína, slúðurberann Miss Pinkerton, Unnur Helga Möller syngur Laetitiu sem er þjónustustúlkan mín og svo er það Ívar Helgason sem syngur Bob sem er flækingur eða þjófur, við vitum það ekki alveg, en það kemur vonandi allt saman í ljós. Matthildur Anna Gísladóttir sér svo um tónlistarstjórn og lætur sig ekki muna um það að töfra heila hljómsveit fram í píanóinu sínu.“Aðgengileg skemmtun Elfa Dröfn segir að Menotti hafi upphaflega samið Piparjúnkuna og þjófinn fyrir útvarp en þrátt fyrir það sé hún líka sviðsett reglulega nokkuð víða. „Hún gerist í ónefndum smábæ á óræðum tíma og þetta er ákveðin innsýn í líf þessara kvenna í þessum bæ þar sem fátt gerist annað en að nágrannakonan heimsækir Miss Todd og svo er slúðrað og talað um veðrið. Dag einn er svo barið að dyrum og fyrir utan stendur ákaflega myndarlegur karlmaður og það er það mest spennandi sem hefur gerst í lífi Miss Todd hvernig sem á það er litið. Í framhaldinu upphefjast svo auðvitað ýmis ævintýri að hætti óperuformsins þannig að fólk má alveg búa sig undir að það verði heilmikið fjör í gamla Samkomuhúsinu.“ Það er óneitanlega þannig að margir veigra sér eilítið við að taka fyrstu skref inn í heim óperunnar sem áhorfendur, enda myndin sem er dregin upp af óperum víða sú að þetta sé þungt og krefjandi form. Elfa Dröfn segist kannast við þetta viðhorf en að Piparjúnkan og þjófurinn sé ákaflega aðgengilegt verk. „Í fyrsta lagi er þetta stutt ópera, ekki nema um klukkustund í sýningu. Í öðru lagi er hún líka fyndin og skemmtileg og í raun ekki krefjandi í hlustun. Óperan er á ensku og að auki þá erum við með íslenska texta sem verður varpað upp. Ég er því þeirrar skoðunar að þetta sé mjög aðgengileg ópera, melódísk og heillandi enda eru þarna mjög fallegar aríur. Þannig að fólk þarf ekkert að óttast því það er mikið leikhús í þessu.“ Elfa Dröfn segir að þau séu farin að hlakka til frumsýningarinnar sem verður í Samkomuhúsinu í dag klukkan þrjú og það sé sérstaklega ánægjulegt að vera í þessu gamla og fallega húsi. „Það er líka ekki leiðinlegt að geta sagt að það sé frítt inn í tilefni af Akureyrarvöku. Vonandi verður svo framhald á þessu hjá okkur en við stefnum á það að fara suður með sýninguna þegar fram líða stundir.“Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 26. ágúst.
Menning Mest lesið Kappleikar: „Ég er í alvörunni að reyna mitt besta“ Lífið Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór Lífið Pantaði viskí og kókaín skömmu fyrir andlátið Lífið „Grét ekkert eðlilega mikið á frumsýningunni“ Bíó og sjónvarp Umbreyttist í Guðna Ágústsson og Ólaf Ragnar Lífið Hefndi sín með því að missa meydóminn Lífið „Mig langar að prófa nýja villtari hluti en konan ekki“ Lífið Segir að gengið hafi verið nærri hjónabandinu, gögnum stolið og allt túlkað á versta veg Lífið Spurt var um fyrirbæri sem Tommi á Búllunni framkvæmdi fyrst hér á landi Lífið Arnaldur tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna Lífið Fleiri fréttir Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Sjá meira