Innlent

Skjálftahrina á Reykjaneshrygg

atli ísleifsson skrifar
Reykjanesviti.
Reykjanesviti. Vísir/stefán
Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg í kvöld þar sem mælst hafa fjórir skjálftar rétt yfir þremur stigum.

Á vef Veðurstofunnar segir að klukkan 19:27 hafi mælst tveir jarðskjálftar, báðir af stærð 3,1 og klukkan 20:10 mældust aðrir tveir skjálftar, báðir af stærð 3,2.

Aðrir skjálftar í hrinunni eru allir mun minni, segir á vef Veðurstofunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×