Innlent

Rafmagnsleysi í hluta Garðabæjar

Anton Egilsson skrifar
Rafmagnsleysið stafar af bilun.
Rafmagnsleysið stafar af bilun. Mynd/Sigurjón Ólason
Vegna bilunar er rafmagnslaust í hluta Garðarbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Veitna.

Er fólki ráðlagt að slökkva á þeim rafmagnstækjum, sem ekki slökkva á sér sjálf og geta valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju. Það á til að mynda við við um eldavélar, mínútugrill og fleiri hitunartæki. Þá er fólki einnig  bent á að slökkva á viðkvæmum tækjum á borð við sjónvörp.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×