Gylfi búinn að koma að marki í sex síðustu sigurleikjum Swansea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2017 10:30 Gylfi Þór Sigurðsson Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City hafa náð í tólf stig út úr síðustu sex leikjum sínum og staðan er nú allt önnur en í upphafi ársins. Gylfi var enn á ný í aðalhlutverki í gær þegar Swansea City vann 2-0 sigur á Englandsmeisturum Leicester City. Gylfi átti þátt í fyrsta markinu og gaf síðan glæsilega stoðsendingu í því síðara. Gylfi hefur nú komið að marki í fjórum leikjum í röð, skorað í þeim þrjú mörk og gefið tvær stoðsendingar. Flestir ef ekki allir eru sammála um mikilvægi Gylfa fyrir Swansea City og ein af mörgum tölfræðistaðreyndum sem sýnir það og sannað er sú staðreynd að íslenski landsliðsmaðurinn hefur komið að marki í sex síðustu sigurleikjum Swansea. Í síðustu sex sigurleikjum Swansea-liðsins í ensku úrvalsdeildinni hefur Gylfi Þór Sigurðsson annað hvort skorað mark sjálfur eða gefið stoðsendingu. Stundum hefur hann bæði skorað og gefið stoðsendingu. Alls hefur Gylfi átt beinan þátt í níu mörkum Swansea (fjögur mörk og fimm stoðsendingar) í þessum sex síðustu sigurleikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi hefur átt þátt í marki í öllum sigurleikjum Swansea nema í þeim fyrsta þegar liðið vann 1-0 sigur á Burnley í fyrstu umferðinni. Leroy Fer skoraði þá eina markið.Síðustu sex sigurleikir Swansea City:12. febrúar: 2-0 sigur á Leicester Stoðsending31. janúar: 2-1 sigur á Southampton Sigurmark og stoðsending21. janúar: 3-2 sigur á Liverpool Sigurmark3. janúar: 2-1 sigur á Crystal Palace Stoðsending10. desember: 3-0 sigur á Sunderland Mark og stoðsending26. nóvember: 5-4 sigur á Crystal Palace Mark og stoðsendingSamtals: 6 sigurleikir Fjögur mörk og fimm stoðsendingar
Enski boltinn Mest lesið Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Eiður Smári sá son sinn leggja upp mark á móti Chelsea Fótbolti Heimir skildi stórt nafn eftir heima og Írar fagna Fótbolti Guðjohnsen snýr aftur á Brúna: „Sérstakt fyrir mig og pabba“ Fótbolti Bruno sá aftur rautt en Maguire bjargaði stigi í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Valur 95-81 | Sigur gegn meisturunum í fyrsta leik Körfubolti Uppgjörið: Omonia - Víkingur 4-0 | Seig á ógæfuhliðina í seinni hálfleik Fótbolti Þykist vera norskur Ólympíufari á stefnumótaöppum: „Þetta er ógeðslegt“ Sport Uppgjörið: Tindastóll - KR 85-94 | KR-ingar mættir aftur Körfubolti Andri Lucas: „Vona að pabbi hafi haldið með mér“ Fótbolti Fleiri fréttir Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Sjá meira