Ekið á sjúkrabíl við sjúkraflutninga Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 12. mars 2017 18:37 Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag. Vísir/Pjetur
Um klukkan 11 í morgun var fólksbifreið ekið á sjúkrabíl sem var á leiðinni með sjúkling á slysadeild Landspítalans á Bústaðavegi. Fólksbílnum hafði verið ekið yfir á rauðu ljósi og inn í hlið sjúkrabílsins. Eneing slys urðu á fólki við áreksturinn en minniháttar tjón varð á ökutækjum. Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu um klukkan 14 í dag vegna karlmanns sem væri að ógna fólki með kylfu fyrir utan fjölbýlishús í hverfi 108. Þegar lögreglu bar að garði kom í ljós að um var að ræða deilur milli nágranna vegna grasskemmda sem orðið höfðu vegna lyftu við flutninga úr húsnu. Kom til orðaskipta milli íbúa vegna þess. Maðurinn sem er íbúi í húsinu hafði ákveðið að leggja áherslu á orð sín með því að hafa kylfu meðferðis. Lögregla lagði hald á kylfuna og á maðurinn von á kæru vegna brots á vopnalögum. Klukkan 16:19 hafði lögregla afskipti af karlmanni í húsnæði í Breiðholti vegna gruns um kannabisræktun. Um minniháttar ræktun var að ræða og var lagt hald á plöntur auk tækja og tóla til kannabisræktunar. Maðurinn var frjáls ferða sinna að lokinni skýrslutöku. Lögreglu bárust tvær tilkynningar vegna heimiliosfbeldis í dag. Annars vegar í morgun í Grafarvogi og hins vegar klukkan hálf fimm í Kópavogi. Í báðum tilfellum var karlmaður handtekinn vegna málsins og voru þeir báðir vistaðir í fangaklefa.
Mest lesið Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana Erlent „Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Innlent Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Innlent Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Innlent Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Innlent Glerbrot í lauginni Innlent Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Nóg af heitu vatni á Selfossi Glerbrot í lauginni „Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Stjónmálafræðingur segir kosningar nær en marga gruni Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Vilhjálmur Hjálmarsson kjörinn varaformaður ÖBÍ „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Fagna löngu tímabærri breytingu Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Biskup Íslands predikar í Vík á 90 ára afmæli kirkjunnar Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Landsfundur ræðir stjórnarslit og nýjum reglum um blóðgjöf fagnað Tveir stórir skjálftar í Bárðarbunguöskjunni Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Tveir reyndust í skotti bíls Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Sjá meira