Fótbolti

Gary Martin þreytti frumraun sína í enn einu jafntefli Lokeren

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gary Martin lék sinn fyrsta leik fyrir Lokeren í kvöld.
Gary Martin lék sinn fyrsta leik fyrir Lokeren í kvöld. mynd/lokeren
Lokeren gerði þriðja jafnteflið í síðustu fjórum leikjum þegar liðið tók á móti Gent í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur 0-0.

Ari Freyr Skúlason lék ekki með Lokeren í kvöld vegna meiðsla.

Gary Martin kom inn á sem varamaður á 66. mínútu, í sínum fyrsta leik fyrir Lokeren.

Stigasöfnun Lokeren hefur verið heldur rýr upp á síðkastið. Í síðustu fjórum leikjum sínum hafa lærisveinar Rúnars Kristinssonar gert þrjú jafntefli, þar af tvö markalaus, og tapað einum leik.

Lokeren er í 10. sæti deildarinnar með 25 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×