Bíó og sjónvarp

Ætlar ekki að vera með í níundu F&F-myndinni ef The Rock verður þar

Birgir Olgeirsson skrifar
Dwayne Johnson.
Dwayne Johnson. Vísir/Getty
Íslandsvinurinn Tyrese Gibson hefur lýst því yfir að hann muni ekki taka þátt í níundu myndinni í Fast&Furious-seríunni ef Dwayne „The Rock“ Johnson verður með í henni.

Gibson er afar ósáttur við þá ákvörðun Johnson að setja aðrar forgang fram yfir Fast&Furious-myndirnar.

Leikarinn hefur sent The Rock tóninn undanfarnar vikur á Instagram og sakað hann um að hafa rústað Fast-fjölskyldunni. Johnsons hefur verið að vinna að gerð kvikmyndar með Jason Statham sem varð til þess að níundu F&F-myndinni var frestað. Myndin með þeim tveimur mun skarta karakterum þeirra úr Fast&Furious-heiminum.

Hann svaraði Gibson óbeint um daginn með því að segja að aumingjar væru ekki velkomnir í Fast&Furious-mynd hans og Statham sem verður frumsýnd árið 2019. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.