Fórnarlambi í nauðgunarmáli skipað að senda héraðssaksóknara tölvupóst Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 15. febrúar 2017 15:09 Maðurinn var sakaður um að hafa nauðgað konunni, svipt hana frelsi, ráðist á hana og tekið myndir af kynfærum hennar. vísir/getty
Konan sem varð fyrir grófu ofbeldi af hendi sambýlismanni sínum í fyrra segist hafa verið beitt þrýstingi til að breyta framburði sínum fyrir dómi. Hún segir manninn sjálfan og föður hans hafa krafist annars framburðar ásamt því sem maðurinn hafi skipað sér að senda héraðssaksóknara tölvupóst um að sér hafi ekki verið nauðgað. Þetta kom fram í máli konunnar fyrir dómi. Sambýlismaður konunnar var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa svipt konuna frelsi, nauðgað henni og beitt hana grófu ofbeldi í febrúar í fyrra, en tveggja ára sonur konunnar varð vitni að hluta atburðarins. Maðurinn sætti gæsluvarðhaldi vegna málsins í rúmt ár á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn, sem er fæddur árið 1992, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní í fyrra dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi vegna ofbeldisins, líkt og greint var frá á Vísi í morgun. Sá dómur var hins vegar ómerktur í Hæstarétti að kröfu héraðssaksóknara á þeim forsendum að í honum fælist þversögn; að maðurinn hefði verið sakfelldur fyrir nauðgun fyrir að hafa þvingað konuna til munnmaka, en ekki fyrir að hafa þvingað hana til endaþarmsmaka. Fjölskipaður héraðsdómur sakfelldi manninn í öllum ákæruliðum í dag. Hann var fundinn sekur um að hafa þvingað konuna bæði til munn- og endaþarmsmaka, sem og líkamsárás, en maðurinn var í fyrra skiptið aðeins sakfelldur fyrir hluta þessara ákæruliða. Framburður konunnar var talinn skýr um það að hún hafi verið mótfallin kynmökunum. Hún hafi reynt að komast undan þeim en gefið eftir af ótta við ákærða og þannig sé ekki hægt að líta svo á að um samþykki hennar hafi verið að ræða. Við aðalmeðferð málsins í fyrra skiptið sagði konan að maðurinn hefði verið í góðri trú og ekki vitað annað en að hún væri samþykk mökunum. Hvað líkamsárásina varðar var maðurinn í fyrra skiptið sakfelldur fyrir líkamsárás að hluta, en dómurinn taldi þá ekki sannað að hann hefði tekið konuna hálstaki. Maðurinn hafði játað árásina að hluta en sagðist ekki geta útilokað neitt enda undir áhrifum þennan dag. Hann var í morgun sakfelldur fyrir árásina í heild. Árið sem maðurinn var í gæsluvarðhaldi kemur til frádráttar fjögurra ára dómnum. Hann þarf að greiða konunni þrjár milljónir króna í miskabætur.
Tengdar fréttir Fjögurra ára dómur eftir ár í gæsluvarðhaldi: Nauðgun og gróft ofbeldi í viðurvist ungs sonar Maðurinn var sakaður um að hafa nauðgað konunni, svipt hana frelsi, ráðist á hana og tekið myndir af kynfærum hennar. 15. febrúar 2017 10:24 Mest lesið „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Erlent Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Innlent Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu Erlent „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Erlent Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Innlent Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Erlent Fleiri fréttir Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Búið að byrgja brunninn Lopabuxur og geitavesti á tískusýningu í sveitinni Nýir aðilar ráðast í uppbyggingu Vesturbugtar Formenn stjórnarflokkanna hljóti að ræða framhaldið Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Sjá meira
Fjögurra ára dómur eftir ár í gæsluvarðhaldi: Nauðgun og gróft ofbeldi í viðurvist ungs sonar Maðurinn var sakaður um að hafa nauðgað konunni, svipt hana frelsi, ráðist á hana og tekið myndir af kynfærum hennar. 15. febrúar 2017 10:24