Fótbolti

Alaves mætir Barcelona í úrslitum bikarsins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mendes skorar hér eina mark leiksins í kvöld.
Mendes skorar hér eina mark leiksins í kvöld. vísir/getty
Deportivo Alaves tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum spænsku bikarkeppninnar.

Alaves vann þá 1-0 sigur á Celta de Vigo. Fyrri leik liðanna lyktaði með markalausu jafntefli og Alaves vinnur því rimmuna á þessu eina marki.

Það þurfti að bíða eftir því en Edgar Mendes skoraði markið dýrmæta átta mínútum fyrir leikslok.

Alaves spilar í úrslitum gegn Barcelona en Börsungar komust áfram í gær eftir harða rimmu gegn Atletico.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×