Innlent

Fjörutíu og fjórir koma til greina í embætti umboðsmanns barna

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Páll Valur Björnsson, fyrrv. alþingismaður, Svala Ísfeld Ólafsdótti dósent og Salvör Nordal forstöðumaður, eru meðal þeirra sem sóttu um starfið.
Páll Valur Björnsson, fyrrv. alþingismaður, Svala Ísfeld Ólafsdótti dósent og Salvör Nordal forstöðumaður, eru meðal þeirra sem sóttu um starfið. vísir/ samsett mynd / Garðar
Fjörutíu og sex manns sóttu um stöðu umboðsmanns barna sem auglýst var til umsóknar 5. maí síðastliðinn. Tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka og koma því 44 til greina í starfið. Stefnt er að því að skipa í embættið frá 1. júlí. Umboðsmaður er skipaður til fimm ára.

Embættið var stofnað í byrjun árs 1995. Umboðsmaður er talinn vera sjálfstæður og óháður embættismaður þrátt fyrir að heyra undir forsætisráðuneytið. Á vefsíðu embættisins má lesa um skyldur umboðsmanns barna. Samkvæmt þeim upplýsingum ber umboðsmanni barna að vinna að bættum hag barna og standa vörð um hagsmuni og réttindi þeirra gagnvart stjórnvöldum. 

Núverandi umboðsmaður barna er Margrét María Sigurðardóttir en hún var skipuð í embættið 1. júlí 2007 og var svo endurskipuð árið 2012 til 30. júní 2017.  Áður hafði Margrét verið framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu og gegndi því starfi frá 2003 til 2007. Margrét er menntaður lögfræðingur.



Umsækjendur um embættið eru:

Árni Guðmundsson, sérfræðingur

Ásdís Jónsdóttir, stuðningsfulltrúi og kennari

Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir, markþjálfi

Belinda Karlsdóttir, forstöðumaður

Björk Ólafsdóttir, nemi

Borgþór Ásgeirsson, aðstoðarritstjóri

Drífa Kristjánsdóttir, kennari

Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur

Eðvald Einar Stefánsson, sérfræðingur

Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur

Elísabet Ýrr Jónsdóttir, deildarstjóri

Esther Ösp Valdimarsdóttir, tómstundafulltrúi

Eygló Rúnarsdóttir, aðjúnkt

Glúmur Baldvinsson, MA í alþjóðasamskiptum

Gréta Mar Jósepsdóttir, MA í opinberri stjórnsýslu

Guðfinna Árnadóttir, verkefnastjóri

Guðmundína Ragnarsdóttir, lögfræðingur

Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir, MS í menningarstjórnun

Gunnar Kristinn Þórðarson, stuðningsfulltrúi

Gunnhildur Gunnarsdóttir, nemi

Hannes Valur Bryndísarson, sérfræðingur

Hjördís Stefánsdóttir, lögfræðingur

Indriði Jósafatsson, MA í stjórnunarfræðum

Ingunn M. Óskarsdóttir, forstöðumaður

Kristjana Atladóttir, kennari

Linda Hrönn Þórisdóttir, leikskólastjóri

Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri

Milana Katchalina, deildarstjóri

Ólöf S. Sigurðardóttir, skólastjóri

Páll Ólafsson, sviðsstjóri

Páll Valur Björnsson, fyrrv. alþingismaður

Salvör Nordal, forstöðumaður

Sigríður Alma Ómarsdóttir, bílstjóri

Sigríður Valdimarsdóttir, kennari

Sigríður Valdimarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri

Sigrún Þórarinsdóttir, félagsmálastjóri

Steinunn Gretarsdóttir, deildarstjóri

Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent

Svana Margrét Davíðsdóttir, lögfræðingur

Svandís Ingimundardóttir, skólamálafulltrúi

Sveindís Anna Jóhannsdóttir, félagsráðgjafi

Una María Óskarsdóttir, sérfræðingur

Unnur Tómasdóttir, forstöðukona

Valgerður Halldórsdóttir, félagsráðgjafi










Fleiri fréttir

Sjá meira


×