Fótbolti

Nýliði í byrjunarliði Íslands

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ingibjörg Sigurðardóttir (nr. 25) þreytir frumraun sína með íslenska landsliðinu í kvöld.
Ingibjörg Sigurðardóttir (nr. 25) þreytir frumraun sína með íslenska landsliðinu í kvöld. vísir/eyþór
Freyr Alexandersson hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands sem mætir Írlandi í vináttulandsleik í Dublin í kvöld.

Einn nýliði er í byrjunarliðinu; Ingibjörg Sigurðardóttir, 19 ára leikmaður Breiðabliks. Hún er með Glódísi Perlu Viggósdóttur og Sif Atladóttur í þriggja manna vörn Íslands.

Stjörnukonan Agla María Albertsdóttir leikur sinn fyrsta leik í byrjunarliði Íslands. Hún hafði áður komið inn á sem varamaður í tveimur landsleikjum fyrr á þessu ári.

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir verður í nýju hlutverki í leiknum í kvöld, sem hægri vængbakvörður. Á hinum vængnum er Hallbera Guðný Gísladóttir.

Sara Björk Gunnarsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir eru á miðjunni og þær Fanndís Friðriksdóttir, Katrín Ásbjörnsdóttir og Agla María frammi.

Leikur Íslands og Írlands hefst klukkan 18:30 að íslenskum tíma. Fylgst verður með leiknum á Vísi.

Byrjunarlið Íslands er þannig skipað:

Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir

Varnarmenn: Glódís Perla Viggósdóttir, Sif Atladóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir

Vængbakverðir: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir

Miðjumenn: Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði, og Sigríður Lára Garðarsdóttir

Framherjar: Fanndís Friðriksdóttir, Katrín Ásbjörnsdóttir og Agla María Albertsdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×