Lífið

Pungar út tveimur milljörðum fyrir strandhús

Nýja húsið hennar Ellen er þrusuflott.
Nýja húsið hennar Ellen er þrusuflott. Vísir / Samsett mynd
Spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres greiddi nýverið 18,6 milljónir dollara, tæpa tvo milljarða króna, fyrir strandhús í Carpinteria í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Er þetta stærsta einstaka sala á húsnæðismarkaði í Santa Barbara-sýslu í ár.

Fínasta borðstofa.
Húsið er búið fimm svefnherbergjum og er dásamlegt útsýni yfir Kyrrahafið. Innréttingar eru nútímalegar og var búið að gera húsið mikið upp áður en grínarinn festi kaup á því. Ellen er þekkt fyrir að elska að taka íbúðir og hús í gegn þannig að hún á eflaust eftir að setja sinn svip á eignina.

Að sjálfsögðu fylgir sundlaug með í kaupunum.
Húsinu fylgir stórt gestahús, tennisvöllur og sundlaug. Húsið er tæplega 560 fermetrar að stærð og er búið geysistóru fataherbergi, baðherbergi með útsýni yfir Kyrrahafið og skrifstofurými.

 

 

 

Eldhúsið er veglegt.
Eins og fyrr segir er þetta stærsta einstaka sala á húsnæðismarkaðinum í Santa Barbara-sýslu í ár. Ellen gæti sett annað met ef hún nær að selja villuna sína í Tuscan-stíl á þessu ári, en kaupverð á þeirri eign er 45 milljónir dollara, rúmlega fjórir og hálfur milljarður króna.

Tennisvöllurinn.
Glæsileg eign.
Ellen er alltaf í stuði.Vísir / Getty Images

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.